Ný Eyja­ferja smíðuð í Póllandi
N:M1414075 PK-259 VestmanDrawingsGeneral ArrangementPK 259.
Eng­inn bjóðandi hef­ur kært ákvörðun Rík­is­kaupa um að velja til­boð pólsku skipa­smíðastöðvar­inn­ar Crist í smíði nýrr­ar Vest­manna­eyja­ferju. Má því bú­ast við að fljót­lega verði fyr­ir­tæk­inu til­kynnt að til­boði þess hafi verið tekið og síðan gengið end­an­lega frá mál­um í skrif­leg­um verk­samn­ingi.
Lengi hef­ur verið unnið að und­ir­bún­ingi að smíði nýrr­ar Vest­manna­eyja­ferju. Á síðasta ári voru samþykkt lög sem heim­iluðu útboð en því fylgdu eng­ar fjár­heim­ild­ir.
Smíðin var boðin út á Evr­ópska efna­hags­svæðinu í sum­ar og barst fjöldi til­boða. Lægstu til­boðin voru frá þrem­ur kín­versk­um skipa­smíðastöðvum og einni norskri, á bil­inu 2,7 til 2,9 millj­arðar króna á þágild­andi gengi. Unnið hef­ur verið að skoðun á til­boðunum og sam­an­b­urði. Fram kom á sín­um tíma að Rík­is­kaup og Vega­gerðin höfðu hug á því að velja norska til­boðið en skipa­smíðastöðin dró sig óvænt til baka. �?á var upp­lýst að verið væri að kanna sér­stak­lega til­boð frá pólsku skipa­smíðastöðinni Crist í Gdansk.
�?llum bjóðend­um var til­kynnt á �?or­láks­messu að til­boð Crist hefði verið valið og þeim gef­inn 10 daga frest­ur til að gera at­huga­semd­ir við þá ákvörðun. Eng­in kæra barst inn­an þess frests, sam­kvæmt upp­lýs­ing­um Rík­is­kaupa, og er því hægt að að til­kynna töku til­boðs og semja við Pól­verj­ana.
Til­boð Crist hljóðaði upp á rúm­lega 26,2 millj­ón­ir evra sem svar­ar til 3,1 millj­arðs króna á nú­gild­andi gengi. Er það aðeins und­ir kostnaðaráætl­un en rúm­lega 600 millj­ón­um kr. yfir lægsta til­boði.

Nýjustu fréttir

Krefjandi umræða styrkir okkur
Viðbragð við svari Eyþórs
Sterkari grunnskóli og öflugri framtíð
Samgöngur – ítrekuð áskorun til þeirra sem ráða
Jakob Frímann ásamt leynigesti á Hljómey Xtra í samstarfi við Aukakrónur Landsbankans
Boltinn farinn að rúlla – og kosningabaráttan líka
Spurt og svarað: Rannveig frá Sjálfstæðisflokknum
Fólkið okkar og framtíðin

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.