Dagskrá þrettándagleði 2017
Fimmtudagur 5. janúar
Kl. 21.00 Kaffi kró, Eyjakvöld
Eyjakvöld með Blítt og létt. Gestir verða m.a Sara Renee, Geir Jón, Guðmundur Davíðs og fleiri. �?ll innkoman af Eyjakvöldinu rennur til Færeyinga vegna þeirra hamfara sem þar hafa verið.
Föstudagur 6. janúar
Kl. 14.30-16.00 Höllin, diskógrímuball Eyverja
Jólasveininn mætir og aðrar fígúrur einnig. Verðlaun verða veitt fyrir búninga og öll börn fá nammipoka frá jólasveininum.
Kl. 16.00-18.00 Einarsstofa, opnun sýningar
Samsýning Ingvars Björns og Odee. Báðir eru þeir þekktir popartlistamenn og hafa sýnt víða um heim. Frábær fjölskyldusýning þar sem m.a. þrívíddargleraugu verða í boði til að njóta listaverkanna.
Kl. 19.00 Hin eina sanna �?rettándagleði ÍBV og Íslandsbanka
Flugeldasýning, blysför, álfabrenna, jólasveinar, tröll, tónlist og margt fleira. Gangan hefst við Hánna og gengið verður upp Illugagötu, niður Höfðaveg og að malarvellinum þar sem hinar ýmsu kynjaverur heilsa upp á gesti.
Laugardagur 7.janúar
Kl. 12.00 – 15.00 Tröllagleði í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja
Fjölskyldan getur komið saman og leikið sér í íþróttasölum undir stjórn íþróttaþjálfara.
Í umsjón Bryndísar Jóhannesdóttur og íþróttafélaganna.
Hlökkum til að sjá sem flesta mæta.
Kl. 12.00-17.00 Langur laugardagur í verslunum
Tröllatilboð og álfaafslættir í gangi hjá verslunum og veitingastöðum!
Kl. 13.00-16.00 Sagnheimar, Jólasveinar í vanda
Jólasveinarnir hafa notað safnið til að gista þegar veðrið er vont. Nú er Grýla að fara aftur til fjalla með Leppalúða, jólaköttinn og jólasveinana sína. �?þekktarangarnir týndu hinu og þessu á safninu, sem þeir þurfa nauðsynlega að hafa með sér.
Okkur vantar krakkahjálparsveit til að finna þessa hluti!
Frítt fyrir fullorðna í fylgd með börnum!
Sunnudagur 8.janúar
Kl. 13.00 Helgistund í Stafkirkjunni
Sr. Guðmundur �?rn fer með hugvekju.

Nýjustu fréttir

KA fylgir ÍBV niður í Lengjudeildina þrátt fyrir stórsigur
Tekjur á íbúa næstlægstar en afkoma meðal þeirra bestu
Handknattleiksdeild ÍBV með saltfisksölu í dag
Bókasafnið komið í hrekkjavökubúning
Bleikur blær og ABBA-tónar hjá Krabbavörn
Nýjar upplýsingar vörðuðu forsendur verðfyrirspurnarinnar
Eyjamenn geta haft úrslitaáhrif á fallbaráttuna
Malbikað víða um bæ – myndasyrpa
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.