Högna Sig­urðardótt­ir arki­tekt er lát­in, 87 ára að aldri.
Högna var fædd í Vest­manna­eyj­um árið 1929. Árið 1949 hóf hún, fyrst Íslend­inga, nám við hinn virta lista­skóla Ecole des Beaux Arts í Par­ís. Hún út­skrifaðist sem arki­tekt árið 1960 og hlaut viður­kenn­ingu skól­ans fyr­ir loka­verk­efni sitt sem tryggði henni starfs­rétt­indi í Frakklandi.
Um líkt leyti lauk hún við teikn­ing­ar af fyrsta verki sínu, íbúðar­húsi í Vest­manna­eyj­um. Með því varð hún fyrsta kon­an í stétt arki­tekta til að teikna hús hér á landi. Högna var lengst­um bú­sett í Par­ís og starfaði þar sem arki­tekt en vann einnig að verk­efn­um hér á landi.
Strax að loknu námi skipaði Högna sér í fram­varðarsveit arki­tekta með ný og rót­tæk viðhorf. Alla tíð síðan hef­ur nafn henn­ar tengst hug­mynd­um um fram­sækna bygg­ing­ar­list. Snemma á 7. ára­tugn­um teiknaði hún íbúðar­hús í Reykja­vík, Kópa­vogi og Garðabæ sem þóttu tíðind­um sæta í ís­lenskri bygg­ing­ar­sögu.
Ein af hundrað merk­ustu bygg­ing­un­um
Kunn­asta verk Högnu hér á landi er ein­býl­is­hús við Bakka­flöt í Garðabæ frá ár­inu 1968. Í því verki vann hún með hug­mynd­ir úr fornri ís­lenskri húsa­gerð sem efnivið í fram­sæk­inni list­sköp­un.
Árið 2000 var húsið við Bakka­flöt valið ein af 100 merk­ustu bygg­ing­um 20. ald­ar í norður- og miðhluta Evr­ópu, í tengsl­um við út­gáfu alþjóðlegs yf­ir­lits­rits um bygg­ing­ar­list 20. ald­ar.
Árið 1992 tók Högna Sig­urðardótt­ir sæti í aka­demíu franskra arki­tekta. Högna var kjör­in heiður­sé­lagi Arki­tekta­fé­lags Íslands árið 2008 og hlaut hún Heiðursorðu Sjón­list­ar árið 2007 fyr­ir ein­stakt fram­lag sitt til ís­lenskr­ar nú­tíma­bygg­ing­ar­list­ar.

Nýjustu fréttir

Ísfélagið komið með tvo þriðju af loðnukvótanum
„Loðna með suðurströndinni og henni fylgir mikill fjöldi hvala”
5. bekkur kynnti sér loðnuna í uppsjávarvinnslu VSV
Kallar eftir tafarlausum úrbótum
Kokkurinn heldur áhöfninni gangandi  
Þegar þú lend­ir í svona ferðu að hugsa hlut­ina allt öðru­vísi
Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.