Minning: Árni Johnsen
Árni Johnsen

Það brýtur á Breka og ödudalirnir dýpka áður en brimklóin skellur á Urðirnar og sjávarlöðrið þeytist undan austanáttinni yfir byggðina á Heimaey. Þar drekkur ungviðið í sig saltan sjóinn sem flýtur um í blóði æðakerfis þeirra. Það gerir Eyjamenn öðruvísi en aðra, náttúran er þeim í blóð borin. Þeir verða ekki allir jafn mikil náttúrubörn eins og Árni Johnsen.

Hann var stæðilegur eins og Jötunn sem útsynningurinn brýtur á og tekur mestan skellin af Smáeyjum þegar ölduhæðin er komin í tveggja stafa tölu. Hann var dökkur á brún og brá með skarpar línur sem skópu svipmikið andlitið. Röddin var djúp og tónninn eins og þegar vindkviða syngur í reiðum og mastri en tónninn teygist og lendir með skell á beru bergi. Hohohó og dirrindí. Stórhöfðasvíta með öllum tilbrigðum í suðaustan 12. Þessi holling gerði Adda einstakan. Hann gekk um fjöll, berg og syllur eins og ég um stofugólf. Addi kleyf Eldey ásamt Dóru og vinum. Upp 70 metra þverhnípið án þess að líta til baka. Hann leit aldrei til baka og tókst á við lífið sem áskorun á hverjum degi. Þar kleif hann margan þverhnýptan hamarinn til að ná takmörkum sínum og endurkomu. Hann var sterkastur þegar á móti blés en langvarandi mótvindur hafði áhrif á stoðkerfið sem hann gaf engan gaum. En þegar hann skall á með logni gafst tími til að sinna hæfileikum í tónlist, semja texta og skrifa bækur. Hann var listamaður í sér og listrænir hæfileikar hans bera honum víða vitni. Hann var fenginn til að finna sterk nöfn á frægustu hljómsveitir landsins og þegar ritstjórum vantaði gildishlaðnar hnitmiðaðar fyrirsagnir í Morgunblaðið var leitað til Adda, með hans ritstíl og blæ.

Hann söng hástöfum með dóttursyni mínum þegar þeir óku Brautina. Ferð sem drengurinn gleymir aldrei með karlinum sem söng svo skemmtilega. Hann var mjúkur inn við beinið þó oftar hafi hann sýnst vera harður og fyrirferðarmikill. Hann fór á undan, var alltaf til í glens og grín. Komið þið peyjar kallaði hann á okkur Hrekkjalómana þegar við keyptum spyrta ýsu og blýanta í kassavís handa bankastjórum Seðlabankans. Þá fengu menn skír skilaboð þegar stýrivextirnir hækkuðu. Nagið blíantana sögðu Hrekkjalómarnir og komu færandi hendi og vildu fá léttar veigar í stað vaxtasúpu og svartsýni. Bölsýni var ekki til í fari Adda, hann blés á hrakspár og illt gengi. Það var trúbrot í hans huga að gefast upp.

Hann lifnaði allur við þegar Rax, uppeldið hans á Mogganum heimsótti hann á lokadegi baráttunnar. Rax spurði hvort hann væri klár í leiðangur á Grænland, þar sem þeir þekktu óravíddir stórbrotinnar náttúru og mannlífs. Þá var eins og lífið kæmi til baka og gamli krafturinn sýndi sig aftur. En undir stjörnu á næturhimni beið Breki og þeir stigu inn í síðasta dansinn. Arnarklóin sveiflaðist og Brekkan tók öll undir.

Við syngjum saman þennan söng.
því hann er minn og þinn.
Við göngum götuna mót gæfu.
sem er þín og mín.
Og dansinn dunar enn.
Síðasti dansinn senn.
Viðeigum stjörnu á næturhimni. Ástin mín ein.

Við Sigga vottum Dóru og fjölskyldunni hjartans samúð.

Ásmundur Friðriksson.

 

Nýjustu fréttir

Terra fær ekki samþykktar breytingar á gjaldskrá
ÍBV og FH skiptu með sér stigunum
Stærstu viðskiptafréttir í sögu Vestmannaeyja
Pétur Bjarna, Eyjamaður og sjávarútvegsfræðingur
Frábæru Orkumóti lokið – FH varð Orkumótsmeistari
ÍBV sækir botnlið FH heim
Breytt siglingaáætlun Baldurs næstu daga
Áfram ÍBV

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.