Hilmar Ágúst Björnsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari hjá kvennaliði ÍBV. Hilmar verður Sigurði Bragasyni, sem ráðinn var á dögunum sem þjálfari liðsins, til aðstoðar.
Hilmar þekkja flestir ÍBV-arar en hann hefur þjálfað í yngri flokkum félagsins frá árinu 2012. Á þeim tíma hefur hann þjálfað alla yngri flokka félagsins, allt frá handboltaskólanum og upp í 3.flokk, bæði stráka og stelpur, og gert það með glæsibrag.
Á síðasta tímabili þjálfaði Hilmar 4.flokk kvenna og 5.flokk karla en stelpurnar í 4.flokki unnu þá m.a. Íslandsmeistaratitla, bæði á eldra og yngra ári.