október, 2019

lau26okt20:00Hljómsveitin BUFF fagnar 20 ára afmæli20:00 Alþýðuhúsið:::Tónleikar

Lesa meira

Um viðburð

Buffið hefur verið frá byrjun ein vinsælasta ballhljómsveit landsins. Á þessum 20 árum hefur sveitin tekið þátt í sjónvarpsþáttum eins og Það var lagið, og Singing Bee. Gefið út fjórar breiðskífur ásamt fjölda laga á safnplötum. Sungið bakraddir á ýmsum stórtónleikum og spilað á öllum stærstu sviðum landsins.

Á þessum 20 árum hefur Buffið þó aldrei haldið tónleika með eigin efni, og er því við hæfi að gera það á afmælisárinu.

Á afmælistónleikum Buffsins munu meðlimir sveitarinnar fara í gegnum söguna í tónum og tali. Frá mörgu er að segja og má því búast við skemmtilegri kvöldstund með lögum Buffsins og öllum sögunum frá þessum 20 árum.

Meðlimir Buff á 20 ára afmælinu eru: 
Einar Þór Jóhannsson
Hannes Friðbjarnarson
Haraldur V. Sveinbjörnsson
Karl Olgeirsson
Pétur Örn Guðmundsson
og Stefán Örn Gunnlaugsson.

Tími

(Laugardagur) 20:00

Staðsetning

Alþýðuhúsið

Skólavegi 21b

X