Fríin nýtt með fjölskyldunni
Sandra Dís, Sóldís Unnur og Halldór Friðrik.

Sandra Dís Sigurðardóttir er ein sjómannskvenna sem Eyjafréttir ræddu við í Sjómannadagsblaðinu.

Aldur? 28 ára.

Atvinna? Er að útskrifast með Bsc í iðjuþjálfunarfræði núna í júní og fer síðan í starfsréttindanámið í haust til að geta starfað sem iðjuþjálfi. Byrjaði í febrúar 2024 að vinna aðeins með náminu á Bjarginu dagdvöl.

Fjölskylda? Halldór Friðrik Alfreðsson 27 ára og Sóldís Unnur sem verður 3 ára í ágúst.

Hversu lengi hefur þú verið sjómannsfrú? Síðan 2020.

Á hvaða skipi er maki þinn? Hann er á Gullberg VE 292.

Kynnist þið þegar maki er á sjó? Já.

Hefur maki þinn alla ykkar tíð verið á sjó? Já.

Hvernig hefur gengið að samræma sjómennsku og fjölskyldulíf? Bara vel, við erum svo ótrúlega heppin með fjölskylduna okkar sem aðstoða okkur þegar Halldór er á sjó. Svo þegar hann er heima þá nýtum við tímann í að gera eitthvað saman fjölskyldan.

Helstu kostir sjómennskunnar? Kostirnir eru að hann fær góð frí inn á milli sem við nýtum þá í að ferðast, eða gera eitthvað skemmtilegt saman.

Helstu gallar sjómennskunnar? Gallinn er sá að þetta geta verið langir túrar inn á milli og stutt stopp.

Eruð þið með hefð um sjómannahelgina? Nei ekkert sérstakt.

Eitthvað að lokum? Ég vil óska sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn.

Nýjustu fréttir

Bærinn vissi ekki af úttektinni á Hraunbúðum
Lottóappið heldur áfram að gleðja landsmenn!
Omar Sowe fær tveggja leikja bann
Háski og félagar senda frá sér þjóðhátíðarlagið „Væntanlega“
Hópferð á undanúrslitaleikinn hjá stelpunum á morgun
Fagmönnun langt undir lágmarki á Hraunbúðum
Baldur flutti nærri ársfjölda Breiðafjarðar á 45 dögum
Þessi föstudagur á Þjóðhátíð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.