Feðgarnir Hörður og Friðrik í Einarsstofu á laugardaginn

Ljósmyndir sem spanna 70 ár í Vestmannaeyjum

 

Nýi og gamli tíminn mætast í myndum þeirra feðga, Harðar Sigurgeirssonar ljósmyndara og Friðriks sonar hans í Einarsstofu á laugardaginn kl. 13.00. Hörður starfaði hér sem ljósmyndari um og eftir miðja síðustu öld. Friðrik varð að byrja upp á nýtt eftir að safnið hans varð gosinu að bráð 1973. Hörður skildi eftir sig merkilegt safn bæði mannamynda og mynda úr daglega lífinu. Friðrik hefur haldið utan um safnið og fáum við að sjá sýnishorn af því á laugardaginn. Sjálfur byrjaði Friðrik ungur að taka myndir og grunnurinn er það sem hann lærði af föður sínum.

Hörður Sigurgeirsson ljósmyndari og píanókennari fæddist á Akureyri 6. maí 1914 og lést í Reykjavík 2. júní 1978. Hann fluttist til Vestmannaeyja 1949 og rak hér ljósmyndastofu frá 1950 til 1965 auk þess að kenna á píanó.

Myndirnar sem Friðrik mætir með ná því yfir nærri 70 ára tímabil, frá 1950 til dagsins í dag. „Í allt liggja eftir pabba um 170 þúsund myndir sem hann tók í Vestmannaeyjum og aðeins ein mynd af hverju,“ segir Friðrik.

„Þetta eru mest myndir af einstaklingum en líka myndir af hópum. Þegar kom að því að klára filmuna fór hann út og tók myndir af því sem fyrir augu bar. Myndir af atvinnu- og mannlífi í Vestmannaeyjum. Allar mannamyndirnar eru merktar og ég veit hverjir hóparnir eru,“ segir Friðrik sem nokkrum sinnum hefur haldið sýningar á myndum föður síns.

Þetta er í annað skipti sem Friðrik teflir fram eigin myndum. Hann var átta ára þegar pabbi hans gaf honum fyrstu myndavélina og byrjaði strax að taka myndir. Allt safnið hans glataðist í gosinu 1973 en Friðrik hélt áfram og fáum við að sjá sýnishorn af því á laugardaginn. „Við áttum heima í Hlaðbæ sem fór undir strax á fyrstu dögum gossins. Það var litlu bjargað og myndirnar mínar voru meðal þess sem glataðist.“

Sannkallað galdratæki

Fram að gosi framkallaði Friðrik allar sínar myndir sjálfur og stækkaði en lét það öðrum eftir þegar hann byrjaði að taka myndir eftir gos. „En ég hef alltaf farið eftir því sem pabbi kenndi mér, að taka aðeins eina mynd af því sem ég ætla að mynda. Það kostar tíma og aga og gerir meiri kröfur til ljósmyndarans sem verður að vanda sig. En er líka skemmtilegt. Árið 1999 eignaðist ég Mamia, japanska myndavél í hæsta gæðaflokki. Hver rammi er 4,5 sinnum 6 sm og ljósopið 1,9 sem venjulega er 2,2 og þykir mjög gott. Mikið galdratæki sem skilaði ótrúlega flottum myndum við oft erfið skilyrði.

Það var svo 2012 sem ég fór yfir í það stafræna, byrjaði á Olympusvélum en skipti svo yfir í Canon. Þrátt fyrir að vera laus við framköllunarkostnað held ég mig við sömu regluna, aðeins ein mynd.“

 

„Þetta verður sitt lítið af hverju frá okkur pabba en sjálfur heillast ég af náttúrunni. Ekki síst briminu sem lemur eyjuna okkar og það tók mig þrjú ár að taka myndir af sólarlagi allan hringinn.

Ég var með sýningu á myndum pabba á goslokum 2013 og svo aftur 2014 en þá hefði hann orðið 100 ára en hann var 64 ára þegar hann lést.“

Enn og aftur má því búast við skemmtlegri sýningu í Einarsstofu sem hefst eins og venjulega klukkan 13.00 á laugardaginn. Myndir Harðar eru ómetanleg heimild um fólk og lífshætti um miðja síðustu öld. Friðrik er meira í nútímanum og fangar það sem við hin sjáum ekki.

Nýjustu fréttir

Valur vann ÍBV í fyrsta leik í úrslitaeinvíginu
The Puffin Run fór fram í dag í blíðskaparveðri
Ástríðan fyrir trérennslu kviknaði í faraldrinum
Dýpkun gekk vel í morgun
Sjálfstæðisflokkur stærstur í Suðurkjördæmi
Góð stemning á fjölskyldudegi á Stakkagerðistúni
ÍBV mætir Val í fyrsta leik úrslita
The Puffin Run hlaupið í níunda sinn á morgun
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.