Urðu að finna auka 150 metra fyrir hvítu tjöldin
Göturnar í ár verða lengri en vanalega og það verður þrengra um alla.

Allt stefnir í metfjölda hvítra tjalda á Þjóðhátíð í ár. Að sögn Ellerts Scheving Pálsson​ar framkvæmdastjóra ÍBV-íþróttafélag​s hefur aldrei verið eins mikil aðsókn í lóðir. „Það bætist í á hverju ári.” segir hann í samtali við Eyjafréttir/Eyjar.net.

​A​ðspurður um hvort ekki ​sé jákvætt að ásókn í hvít tjöld sé að aukast​ svarar Ellert að sjálfsögðu ​sé það jákvætt. „Það er greinilegt að hátíðin er alltaf að stækka og fleirum langar að vera með hvít tjöld. Fyrir hátíðina í ár urðum við að finna auka 150 metra á svæðinu. Það er hægara sagt en gert. Göturnar verða lengri en vanalega og það verður þrengra um alla, það er alveg á hreinu. Ég vona að engum bregði hversu þröngt verður en einhver sagði að þröngt mættu sáttir sitja.”

Þarf að grípa til einhverra aðgerða á svæðinu

Hvað er til ráða í framtíðinni til að fjölga stæðum fyrir hvít tjöld?

Það er góð spurning. Við munum setjast yfir þetta að lokinni hátíð og fara yfir þá stöðu sem er komin upp. Auðvitað viljum við ekki lóðir séu uppseldar en þá þarf að grípa til einhverra aðgerða á svæðinu. Það hafa ýmsar hugmyndir komið upp en svona lagað er ekki ákveðið eingöngu af félaginu. Við þurfum að setjast niður með bæjaryfirvöldum og fara yfir þetta, segir Ellert Scheving Pálsson​.

Hústjöldin í Dalnum eiga sér langa sögu.

Nýjustu fréttir

Tveir handteknir í tengslum við andlát
Vera Lífsgæðasetur og LifeLine Health hefja samstarf
Andrea Jacobsen til liðs við ÍBV
Tafir vegna bilunar
Dagskrá fyrsta Þorrablóts ÍBV klár
Fækkun sjúkrafluga milli lands og Eyja
Tökum þátt í að gera bæinn okkar enn betri!
Hvert siglir Herjólfur í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.