Tilhlökkun að taka nýtt skip í notkun
Sigurbjörg ÁR kemur til hafnar í Hafnarfirði.

Sigurbjörg ÁR, nýtt skip Ísfélagsins kom til Hafnafjarðar á laugardaginn. Það var Rammi sem tók ákvörðun um smíðina á sínum tíma og var Sigurbjörg hugsuð sem humar- og bolfiskveiðiskip sem átti að sjá starfseminni í Þorlákshöfn fyrir hráefni. Síðan hefur mikið breyst, humarveiðar bannaðar, starfsemin lögð niður í Þorlákshöfn og Rammi hefur sameinast Ísfélagi Vestmannaeyja og heitir í dag Ísfélag hf.

Sigurbjörg var smíðuð í Celiktrans-skipasmíðastöðinni í Istanbúl.  Mesta lengd er 48,10 m og breidd 14 m.  Aðalvél er MAN 1.795 kW, 800 snúningar á mínútu. Hjálparvélar eru tvær og bógskrúfa. Spilbúnaður er 4 togvindur, 3 gilsavindur, 6 grandaravindur, tvær pokavindur, átta bakstroffuspil og 2 akkerisspil ásamt hjálparvindum og dekkkrana. Vinnslubúnaður er fyrsta flokks og er sjálfvirkur búnaður sem setur afla í lest og landar, þannig að lestarvinna háseta er úr sögunni. Kælibúnaður tryggir fyrsta flokks hráefni. Siglingatæki eru frá Simberg en aflanemakerfi frá Marport. Íbúðir eru fyrir 15 manna áhöfn og öll aðstaða til fyrirmyndar. Gert er ráð fyrir tvöfaldri áhöfn. Kaupverð er ríflega 3,1 milljarður.

Sigurbjörgu er ætlað að koma í stað þriggja skipa, Jóns á Hofi ÁR,  Fróða II ÁR  og  Ottós Þorlákssonar VE. Áætlað er að Dala Rafn verði gerður út á rækju sem er liður í endurskipulagningu útgerðarinnar.

Sigurbjörg var sjósett fyrir rétt ári og byrjar á að fara í slipp í botnhreinsun og málningu. Um leið verður skipið gert klárt og er reiknað með að það haldi til veiða í ágúst. Skipstjóri er Sigvaldi Páll Þorleifsson og yfirvélstjóri Þorfinnur Hjaltason. „Þetta er öflugt og gott skip, hönnun og búnaður fyrsta flokks. Vel fer um áhöfn og öll vinna til fyrirmyndar. Það er alltaf gaman að fá nýtt skip og tilhlökkunarefni að taka það í notkun,“ sagði Eyþór Harðarsson, útgerðarstjóri Ísfélagsins.

Nýjustu fréttir

Við þurfum að hætta þessum bútasaumi
Úr fótbolta yfir í hlaup
Aníta Sif er Eyjamaður mánaðarins
Samfélag fyrir fjölskyldur
ÍBV tapaði gegn Haukum – Oddaleikur framundan
Kvennalið ÍBV byrjar Bestu deildina á sigri
Allir út að plokka á Heimaey á morgun
Spurt og svarað: Guðbjörg Sól frá Sjálfstæðisflokknum

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.