Samfylking heldur opna fundi um húsnæði og kjaramál
KRISTRUN JOHANN HRINGFERD MYND
Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingar og Jóhann Páll Jóhannsson alþingismaður á leikvellinum. Ljósmynd/aðsend.

Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingar og Jóhann Páll Jóhannsson alþingismaður boða til opins fundar í Vestmannaeyjum 7. september. „Við hlökkum til að eiga samtöl við heimamenn um húsnæðismálin, kjörin og málefni fjölskyldna,“ segir Kristrún en fundirnir eru liður í umfangsmiklu málefnastarfi flokksins um allt land.

Málin verða rædd yfir ljúffengri súpu á Tanganum í Vestmannaeyjum laugardaginn 7. september kl. 12:00, segir í tilkynningu frá Samfylkingunni.

Málefnastarfið opnað upp á gátt

„Það hefur verið kappsmál hjá okkur að opna málefnastarf Samfylkingarinnar upp á gátt þannig að fólk um allt land geti tekið þátt í að leggja grunn að áherslum og forgangsröðun flokksins í veigamestu málaflokkum. Það er öllum velkomið að taka þátt í samtalinu og koma á framfæri sínum sjónarmiðum,“ segir Kristrún. „Heilbrigðismálin voru í forgrunni í fyrra, svo atvinna og samgöngur síðasta vetur og nú erum við að taka hringferð um húsnæðis- og kjaramálin.“

Jóhann Páll er formaður stýrihópsins sem fer fyrir vinnunni. „Við erum meðal annars að kortleggja hvernig er hægt að byggja meira, hraðar og betur til að koma jafnvægi á íbúðamarkaðinn, hvernig er skynsamlegt að styðja betur við barnafólk og tryggja að eldra fólk njóti ávinnings af því að hafa greitt í lífeyrissjóði.“

Hér má finna upplýsingar um næstu fundi.

Nýjustu fréttir

Tafir vegna bilunar
Dagskrá fyrsta Þorrablóts ÍBV klár
Fækkun sjúkrafluga milli lands og Eyja
Tökum þátt í að gera bæinn okkar enn betri!
Hvert siglir Herjólfur í dag
Efnilegir pílukastarar láta til sín taka
Vestmannaeyjar: Raunverulegt verðmætasköpunar vetur-sumar-vor og haust
Tími til kominn að taka næsta skref
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.