Ábending frá Herjólfi
herjolfur_naer
Herjólfur við bryggju í Eyjum. Eyjar.net/TMS

Herjólfur ohf. hefur gefið út ábendingu varðandi siglingar næstu daga. Á morgun, aðfangadag siglir Herjólfur til Þorlákshafnar. Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 07:00. Brottför frá Þorlákshöfn kl. 10:45.

Farþegum er góðfúslega bent á að veður og ölduspá fyrir 25.desember og fyrri hluta 26.desember gefur til kynna að siglingar almennt eru ekki hagstæðar í báðar hafnirnar. Gefin verður út tilkynning um leið og ákvörðun um siglingar liggja fyrir.

25.desember
Við stefnum á að gefa frá okkur tilkynningu vegna siglinga á jóladag fyrir kvöldmat þann 24.desember. Í síðasta lagi fyrir kl. 08:00 á jóladag.

26.desember
Tilkynning vegna siglinga annan í jólum verður gefin út kl. 06:00 þann morgun.

Á þessum árstíma er alltaf hætta á færslu milli hafna og því ekki æskilegt að skilja eftir farartæki í annarri hvorri höfninni. Eins eru þeir farþegar sem ætla sér að nýta gistirými ferjunnar minntir á að þeir þurfa að koma með sinn eiginn búnað.

Nýjustu fréttir

KA fylgir ÍBV niður í Lengjudeildina þrátt fyrir stórsigur
Tekjur á íbúa næstlægstar en afkoma meðal þeirra bestu
Handknattleiksdeild ÍBV með saltfisksölu í dag
Bókasafnið komið í hrekkjavökubúning
Bleikur blær og ABBA-tónar hjá Krabbavörn
Nýjar upplýsingar vörðuðu forsendur verðfyrirspurnarinnar
Eyjamenn geta haft úrslitaáhrif á fallbaráttuna
Malbikað víða um bæ – myndasyrpa
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.