ÍBV lagði Gróttu
Sigri fagnað. Ljósmynd/Sigfús Gunnar.

ÍBV náði í tvö stig í Olísdeild karla í dag. Eini leikur dagsins var háður í Eyjum er heimamenn tóku á móti Gróttu. Leikurinn var nokkuð jafn framan af en ÍBV leiddi í leikhléi, 17-15. Heimamenn héldu svo forystunni en náðu samt aldrei að hrista Gróttumenn almennilega af sér. Þó hélst forystan þetta 1-2 mörk og lokatölur urðu 31-29.

Dag­ur Arn­ars­son var marka­hæst­ur fyr­ir Eyja­menn með níu mörk, Sig­trygg­ur Daði Rún­ars­son skoraði sjö og Daniel Vieira gerði fimm mörk. Eyjamenn eru nú komnir með 18 stig, jafn mörg og Stjarnan í 6.-7. sæti eftir 17 umferðir.

Nýjustu fréttir

Er betra að vita en halda?
ÍBV sækir Breiðablik heim í kvöld
Reyktur lax frá Laxey til styrktar ÍBV handbolta
Sunnudagsmorgunn með alþjóðlegum blæ
Um 8000 farþegar með tíu skemmtiferðaskipum
Tvö skemmtiferðaskip í blíðunni í Vestmannaeyjum
Fyrstu spár lofa góðu fyrir Þjóðhátíð
Skiptu 3.000 tonnum af makríl fyrir 1.400 tonn af þorski
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.