Fágætissalur verður opnaður í Safnahúsinu á sunnudaginn, 18. maí nk. og hefst dagskráin í Ráðhúsi Vestmannaeyja kl. 13:30. Þann dag er Alþjóðlegi og íslenski safnadagurinn 2025 haldinn hátíðlegur undir yfirskriftinni Framtíð safna í síbreytilegum samfélögum. Það er því vel við hæfi að fágætissafnið verði opnað þann dag. Það er í nýju sérútbúnurými í Safnahúsi Vestmannaeyja og stenst allar kröfur um varðveislu gamalla bóka.
Þar verður eitt merkilegasta fágætisbókasafn landsins opnað almenningi en uppistaðan í því er um 1500 bækur sem Ágúst Einarsson, fyrrverandi prófessor og rektor á Bifröst hefur gefið Bókasafni Vestmannaeyja. Þar verður meðal annars að finna allar útgáfur Biblíunnar frá Guðbrandsbiblíu 1584, Þorláksbiblíu 1644 og Steinsbiblíu 1728 að telja. Elsta bókin í safninu er vögguprent, frá 1498.
Þá verða einnig í fágætissalnum 37 málverk eftir Jóhannes Kjarval en Vestmannaeyjabær mun eiga eitt stærsta safn Kjarvalsverka sem loksins verða gerð aðgengileg á varanlegri sýningu.
Verk eftir Júlíönu Sveinsdóttur prýða veggi sérstaks átthagarýmis með rösklega 2.000 bókum og blöðum, auk Íslandskorta frá um 1570.
Athöfnin hefst kl. 13:30 í Ráðhúsi Vestmannaeyja, þar sem flutt verða stutt ávörp en að því loknu verður gengið yfir í Safnahúsið þar sem menningarmálaráðherra Logi Einarsson opnar fágætissalinn formlega og biskup Íslands frú Guðrún Karls Helgudóttir og dómsmálaráðherra frú Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir opna Biblíusýninguna.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst