Safnahús – Einstakt fágætissafn opnað á sunnudaginn
Kári Bjarnason við eina bókahilluna í fágætissafninu sem hafa að geyma ómetanlegan fjársjóð íslenskra bókmennta.

Fágætissalur verður opnaður í Safnahúsinu á sunnudaginn, 18. maí nk. og hefst dagskráin í Ráðhúsi Vestmannaeyja kl. 13:30. Þann dag er Alþjóðlegi og íslenski safnadagurinn 2025 haldinn hátíðlegur undir yfirskriftinni Framtíð safna í síbreytilegum samfélögum. Það er því vel við hæfi að fágætissafnið verði opnað þann dag. Það er í nýju sérútbúnurými  í Safnahúsi Vestmannaeyja og stenst allar kröfur um varðveislu gamalla bóka.

Þar verður eitt merkilegasta fágætisbókasafn landsins opnað almenningi en uppistaðan í því er um 1500 bækur sem Ágúst Einarsson, fyrrverandi prófessor og rektor á Bifröst hefur gefið Bókasafni Vestmannaeyja. Þar verður meðal annars að finna allar útgáfur Biblíunnar frá Guðbrandsbiblíu 1584, Þorláksbiblíu 1644 og Steinsbiblíu 1728 að telja.  Elsta bókin í safninu er vögguprent, frá 1498.

Þá verða einnig í fágætissalnum 37 málverk eftir Jóhannes Kjarval en Vestmannaeyjabær mun eiga eitt stærsta safn Kjarvalsverka sem loksins verða gerð aðgengileg á varanlegri sýningu.

Verk eftir Júlíönu Sveinsdóttur prýða veggi sérstaks átthagarýmis með rösklega 2.000 bókum og blöðum, auk Íslandskorta frá um 1570.

Athöfnin hefst kl. 13:30 í Ráðhúsi Vestmannaeyja, þar sem  flutt verða stutt ávörp en að því loknu verður gengið yfir í Safnahúsið þar sem menningarmálaráðherra Logi Einarsson opnar fágætissalinn formlega og  biskup Íslands frú  Guðrún Karls Helgudóttir og dómsmálaráðherra frú Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir opna Biblíusýninguna.

Nýjustu fréttir

Norconsult metur fýsileika og kostnað við Eyjagöng
Fjaran afhjúpar gamla leyndardóma
Skólastarf hefst á ný í GRV
Höfum kjark til að horfa á staðreyndir
Sindri Georgsson – Fátt sem toppar utanvegahlaup í Eyjum
Fjórði stærsti júlímánuður í sögu Herjólfs
Karlasveit GV leikur í deild þeirra bestu að ári
Mikið siglt og víða leitað eftir afla
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.