Í dag kynnti Hafrannsóknastofnun úttekt á ástandi nytjastofna og ráðgjöf fyrir næsta fiskveiðiár. Í tilkynningu frá stofnuinni segir að aflamark fyrir á þriðja tug stofna sé lagt til á grundvelli langtímamarkmiða um sjálfbæra nýtingu.
Hafrannsóknastofnun ráðleggur 4 % lækkun aflamarks þorsks fiskveiðiárið 2025/2026. Byggir sú ráðgjöf á aflareglu stjórnvalda. Því lækkar ráðlagður heildarafli úr 213 214 tonnum á yfirstandandi fiskveiðiári í 203 822 tonn. Gert er ráð fyrir að stærð viðmiðunarstofns þorsks dragist saman næstu tvö til þrjú ár. Ástæðuna má rekja til þess að árgangarnir frá 2021 og 2022 eru áfram metnir undir meðallagi. Þeir koma til með að ganga inn í viðmiðunarstofninn í ár og á næsta ári. Einnig eru árgangarnir frá 2019 til 2021 hægvaxta, sem talið er tengjast slöku ástandi loðnustofnsins.
Upphafsaflamark fyrir næstkomandi loðnuvertíð samkvæmt aflareglu strandríkja er 46 384 tonn. Þessi ráðgjöf verður uppfærð áður en veiðar hefjast að lokinni haustmælingu.
Samkvæmt nýuppfærðri aflareglu verður aflamark ýsu 78 918 tonn sem er 3 % hækkun á ráðgjöf frá yfirstandandi fiskveiðiári. Stærð viðmiðunarstofns er metin við sitt hæsta gildi. Líkur eru á því að stærð viðmiðunarstofnsmuni haldist há á næsta ári vegna góðrar nýliðunar áranna 2019 til 2021, en árgangarnir sem koma þar á eftir eru metnir litlir.
Ráðgjöf fyrir ufsa samkvæmt uppfærðri aflareglu, lækkar um 11 % frá yfirstandandi fiskveiðiári og er 59 510 tonn.
Ráðgjöf fyrir gullkarfa er 41 911 tonn eða 12 % lægri en á yfirstandandi fiskveiðiári. Nýliðun gullkarfa hefur verið slök undanfarinn áratug og af þeim sökum hefur hrygningarstofninnfarið minnkandi. Fyrirséð er að sú þróun haldi áfram og á komandi árum þurfi að draga verulega úr sókn.
Áfram er lagt er til að aflamark djúpkarfa verði 0 tonn þar sem hrygningarstofninn er metinn undir varúðarmörkum. Miðað við fyrirliggjandi gögn er ekki búist að stofninn fari upp fyrir varúðarmörk í fyrirsjáanlegri framtíð þar sem nýliðun í stofninn hefur verið metin mjög lág um nokkurt skeið.
Ráðgjöf fyrir grálúðu hækkar um 17 % frá fyrra ári og er nú 20 992 tonn. Ráðlagt aflamark er hærra vegna aukningar á heildarstofnstærð. Útlit er fyrir að stofninn fari vaxandi á næstu árum vegna góðrar nýliðunar.
Ráðgjöf um aflamark íslensku sumargotssíldarinnar fyrir komandi fiskveiðiár hækkar um 27 % og er 103 367 tonn. Ástæðan er sú að stórir árgangar frá 2017-2019 eru áberandi í veiðistofninum. Gert er ráð fyrir að ráðgjöf muni lækka á næstu árum þegar yngri árgangar bætast við veiðistofninn en þeir eru metnir talsvert minni. Óvissa er umtalsverð í stofnmatinu og mikils ósamræmis gætir í vísitölum milli áranna 2024 og 2025.
Að auki við ráðgjöf um aflamarkbirtist yfirlit yfir meðafla sjávarspendýra og sjófugla í veiðum á hafsvæðinu við Ísland. Helstu niðurstöður eru þær að frá seinustu mælingum hefur dregið úr meðafla en hann er enn töluverður. Meðafli tegunda þar sem stofnstærð er lítil eða hefur minnkað, eins og landsels, teistu og himbrima sýnir mikilvægi vöktunar bæði á meðaflamagni og stofnstærðum þessara tegunda.
Á meðfylgjandi töflu má sjá yfirlit yfir ráðgjöf stofnunarinnar.
Tillögur um hámarksafla fiskveiðiárið 2025/2026, ásamt tillögum og aflamarki samkvæmt ákvörðun stjórnvalda fyrir fiskveiðiárið 2025/2025 (í tonnum). Einnig er sýnd hlutfallsleg (%) breyting á ráðgjöf milli fiskveiðiára.
1)Ráðgjöf skv. aflareglu |
2)Aflamark á öllu útbreiðslusvæði stofns fyrir almanaksár |
3) Ráðgjöf annaðhvert ár
4) Ráðgjöf gefin út í fyrra til tveggja ára |
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst