Fréttir af baggavélum og lömbum
eftir Heiðu Ingimarsdóttur.
Heiða Ingimarsdóttir

Síðan ég tók sæti á þingi hefur mér þótt þreytandi að hlusta á þingmenn ákveðinna flokka tala landsbyggðina niður, tala alltaf um okkur landsbyggðafólk eins og þurfalinga sem eigum endalaust bágt og að það sé alltaf verið að ráðast á okkur. Það hlýtur að vera þreytandi að líða alltaf eins og maður sé í vörn og aldrei í sókn.

Nú var verið að ræða frumvarp til laga um fjölmiðla. Í haust á reyndar að fara í heildarendurskoðun á lögunum en breytingarnar sem nú voru gerðar snéru fyrst og fremst að því að styðja við fjölmiðla á landsbyggðinni.

Þingmaður Sjálfstæðisflokksins ákvað að ræða frumvarpið en kom um leið upp um þekkingarleysi sitt þegar kemur að fjölmiðlaumhverfi á landsbyggðinni. Í fyrsta lagi talaði hann um héraðsmiðla sem flyttu nærfréttir um nýja baggavél í Tungu eða þrílembda á. Hann dró reyndar fljótt í land og sagði gera sér grein fyrir að þeir flytji einnig alls konar fréttir og að fáir vildu missa þá. Í öðru lagi var hann viss um að þeir gætu haldið sér á floti án ríkisstyrkja, hann gaf til kynna að þeir yrðu þá ef til vill betur reknir.

Varðandi fyrsta punktinn þá var hann samhliða þessum lýsingum á héraðsmiðlum að tala um hversu sterka nærveru Árvakur og Sýn hefðu á landsbygðinni. Þar væru fréttaritarar sem flyttu fréttir og svo kæmu fréttamenn á svæðið þegar eitthvað stórt væri í gangi. Nú eru þessi mál mér mjög skyld, enda er ég upplýsingafulltrúi sveitarfélags og hef verið í rúm þrjú ár. Fréttaritarar þessara miðla hafa ekki einu sinni haft samband við mig. Ég reyndar vissi ekki af tilurð þeirra fyrr en snemma á þessu ári þegar mér var bent á þá. Sólgnari virðast þeir ekki í fréttir af svæðinu. Af stóru miðlunum er RÚV duglegast en betur má ef duga skal. Við upplýsingafulltrúarnir fáum gjarnan þau svör að fréttirnar þyki ekki nógu krassandi á skrifstofunni fyrir sunnan, kannski sé þó hægt að koma þeim fyrir í Landanum. Þar virðist nefnilega helst eiga að koma okkur fyrir, brosandi í lopapeysu.

Reynsla mín er sú að ef fréttirnar eiga að ná eyrum annarra miðla þá þarf helst að koma þeim fyrst í hérðasmiðlana þar sem Sýn og Árvakur geta svo pikkað þær upp. Miklu frekar en að þær komi beint frá upplýsingafulltrúanum. Þar af leiðandi skil ég vel að núverandi frumvarp eigi að styðja við landsbyggðafjölmiðla umfram aðra enda greinilega mikilvægt að viðhalda þeim svo hægt sé að fá frekari dreifingu á landsbyggðafréttum.

Fréttamenn stærri fjölmiðla sjást varla í fjórðungnum nema það séu náttúruhamfarir eða stórslys. Það er þó ýmislegt annað fréttnæmt sem gerist á landsbyggðinni sem skiptir máli og hefur jafnvel ekkert að gera með sveitina, baggavélar eða sauðfé. Maður sér gjarnan fréttir rata í miðlana ef þær gerast á suðvesturhorninu þó þær hafi einnig gerst úti á landi og þá jafnvel fyrr. Tengingarnar eru bara fáar þar og fjarlægðin mikil, að því er virðist. Þar eru því fjölmiðlar á landsbyggðinni gríðarlega mikilvægir.

Í öðru lagi segir það sig svo sjálft að á svæði þar sem búa um það bil 10 þúsund manns næst aldrei nógu góð sala á blaðinu eða auglýsingum til að reka fjölmiðil svo vel megi vera. Það er bara, því miður, dæmi sem ekki gengur upp.

Miðlarnir hafa stórt hlutverk í að miðla sögum af svæðinu, flytja fréttir þegar vá ber að, veita stjórnvöldum aðhald og ýta undir staðarstolt, svo eitthvað sé nefnt.

Ég fagna því þar af leiðandi að ríkisstjórnin hafi ákveðið að styðja við landsbyggðamiðla og vona að í heildarendurskoðun á lögunum verði mikilvægi þeirra haft í huga. Mögulega ætti stjórnmálafólk landsins að nýta sumarið fram að haustþingi í að skima landsbyggðamiðlana, sem og stærri miðlana, með gagnrýnum huga og setja sig í spor þeirra sem ekki búa á suðvesturhorninu.

 

Heiða Ingimarsdóttir

Höfundur er sitjandi varaþingmaður Viðreisnar í Norðausturkjördæmi.

Nýjustu fréttir

„Fínasti vertíðarfiskur”
Kallað eftir hugmyndum fyrir Goslokahátíð 2026
Ein ferð í Landeyjahöfn
Heilsurækt við Íþróttamiðstöðina boðin út á ný eftir kærumál
Góður mánudagur sem varð enn betri!
Fimm skip til loðnuleitar
Löndun Breka VE í Grundarfirði – flókið verkefni og fumlaus vinnubrögð
Gong slökun, endurstilling í hraða nútímans
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.