Góður túr hjá Breka — áhersla á karfa og ufsa
Breki á leið til hafnar í dag. Ljósmynd/vsv.is

Ísfisktogarinn Breki VE kom að landi síðdegis í dag eftir fyrsta túrinn að loknu sumarfríi áhafnarinnar. Aflabrögð voru góð og var uppistaðan aflans djúpkarfi, ufsi og gullkarfi. „Túrinn gekk mjög vel,“ segir Bergur Guðnason skipstjóri, sem stýrði Breka í þessari veiðiferð. „Þetta var fyrsti túrinn eftir sjö vikna sumarfrí, en áhöfnin var fljót að detta í gírinn aftur.“

Veitt var aðallega vestur í Skerjadýpi og á svæði sem kallað er Fjöllin, þar sem voru ágæt aflabrögð. „Við lögðum áherslu á djúpkarfa, ufsa og gullkarfa – og það reyndist vera uppistaðan í aflanum,“ segir Bergur í samtali við Vinnslustöðvar-vefinn.

Breki heldur aftur til veiða strax í fyrramálið, en þá tekur Magnús Ríkarðsson við sem skipstjóri. Bergur gerir ráð fyrir svipuðu uppleggi og í síðasta túr – að halda vestur á sömu mið. Fleiri myndir frá komu Breka til Eyja í dag má sjá hér.

Nýjustu fréttir

Minnisvarði um Þór gæti fengið nýjan stað
Áfram Noregur í kvöld – Heimisáhrifin virka
Draumurinn orðinn að veruleika
Einstakt safn Magnúsar vakti forvitni á Goslokahátíð
Þrjár vikur í Þjóðhátíð – uppbyggingin hafin í Herjólfsdal
Sumarlesturinn hefur aldrei farið betur af stað
Áform um þrjú ný einbýlishús við Reglubraut
Evrópusambandið, meira en tollabandalag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.