Síðastliðna helgi tók Ísfélagið þátt í vörusýningunni What’s Cooking? 2026. Sýningin er ein af þremur „fish & chips“ sýningum sem Ísfélagið tekur árlega þátt í á Englandi.
Vörumerki Ísfélagsins, RAMMI, er eitt þekktasta merkið fyrir sjófrystan fisk í „fish & chips“ geiranum. Sýningin var vel sótt og að vanda fékk fyrirtækið hrós fyrir gæðin. Að þessu sinni komu þó einnig fram athugasemdir um hátt verð, enda hefur fiskverð hækkað á undanförnum árum.
Á myndinni má sjá Jón Pál markaðsstjóra, Gústaf Línberg vinnslustjóra og Callum Bellshaw frá Henry Colbeck spjalla við sýningargesti.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.