Forsetahjónin ánægð með heimsókn til Eyja
Forsetahjónin, Halla og Björn fengu hlýjar móttökur í Barnaskólanum.

„Hér í Eyjum er mjög sérstakt andrúmsloft,“ heldur Halla áfram. „Hugmyndaauðgi er mikil, eins og við sáum dæmi um í Þekkingarsetrinu. Krafturinn í uppbyggingu Laxeyjar hefur líka verið einstakur. Þar er mikill metnaður lagður í reksturinn og sjálfbærni höfð að leiðarljósi, til dæmis með því að endurnýta vatnið hvað eftir annað. Við fórum einnig í Ísfélagið, sem má réttilega kalla hátæknifrystihús, og sáum þar síldina flæða svo að segja sjálfkrafa í gegnum alla framleiðslulínuna. En um leið hugið þið vel að sögunni og hefðunum. Við heimsóttum Safnahúsið og hittum þar Kára Bjarnason forstöðumann sem sýndi okkur meðal annars Fágætissafnið. Það kom skemmtilega á óvart að sjá þar öll Kjarvalsmálverkin og allar þessar íslensku Biblíur samankomin á einum stað. Í raun er ómetanlegt að þessir dýrgripir séu varðveittir hér í Vestmannaeyjum.

Ég er þakklát fyrir gestrisnina sem við höfum notið hér, fyrir allan fróðleikinn og þessa eyjahlýju sem hefur umlukið okkur í heimsókninni og okkur finnst einkenna þetta góða samfélag,“ segir Halla að lokum. „Þið verðið að varðveita hana vel. Aldrei týna hlýjunni.“

Þetta er meðal þess sem kemur fram í viðtali við forsetahjónin, Höllu Tómasdóttur og Björn Skúlason í blaði dagsins.

Hægt er að gerast áskrifandi að Eyjafréttum hér á vefnum, en blaðið fæst einnig í lausasölu í Tvistinum og á Kletti. Áskrifendur geta nálgast vefútgáfuna hér. Ef þú vilt gerast áskrifandi þá er þetta síðan sem þú getur með auðveldum hætti náð þér í blaðið.

 

Nýjustu fréttir

Vestmannaeyjar í gegnum linsu tímans
Forsetahjónin ánægð með heimsókn til Eyja
Jöfn kynjahlutföll hjá embætti Lögreglustjórans í Eyjum
F​jölluðu um stöðu dómsmáls gegn félaginu
Víglundur Þór Þorsteinsson læknir er látinn
Hvað er að vera Sjálfstæðismaður?
Af hverju er heita vatnið svona dýrt?
Samgöngur hafa ekki stoppað Miðflokkinn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.