„Hér í Eyjum er mjög sérstakt andrúmsloft,“ heldur Halla áfram. „Hugmyndaauðgi er mikil, eins og við sáum dæmi um í Þekkingarsetrinu. Krafturinn í uppbyggingu Laxeyjar hefur líka verið einstakur. Þar er mikill metnaður lagður í reksturinn og sjálfbærni höfð að leiðarljósi, til dæmis með því að endurnýta vatnið hvað eftir annað. Við fórum einnig í Ísfélagið, sem má réttilega kalla hátæknifrystihús, og sáum þar síldina flæða svo að segja sjálfkrafa í gegnum alla framleiðslulínuna. En um leið hugið þið vel að sögunni og hefðunum. Við heimsóttum Safnahúsið og hittum þar Kára Bjarnason forstöðumann sem sýndi okkur meðal annars Fágætissafnið. Það kom skemmtilega á óvart að sjá þar öll Kjarvalsmálverkin og allar þessar íslensku Biblíur samankomin á einum stað. Í raun er ómetanlegt að þessir dýrgripir séu varðveittir hér í Vestmannaeyjum.
Ég er þakklát fyrir gestrisnina sem við höfum notið hér, fyrir allan fróðleikinn og þessa eyjahlýju sem hefur umlukið okkur í heimsókninni og okkur finnst einkenna þetta góða samfélag,“ segir Halla að lokum. „Þið verðið að varðveita hana vel. Aldrei týna hlýjunni.“
Þetta er meðal þess sem kemur fram í viðtali við forsetahjónin, Höllu Tómasdóttur og Björn Skúlason í blaði dagsins.
Hægt er að gerast áskrifandi að Eyjafréttum hér á vefnum, en blaðið fæst einnig í lausasölu í Tvistinum og á Kletti. Áskrifendur geta nálgast vefútgáfuna hér. Ef þú vilt gerast áskrifandi þá er þetta síðan sem þú getur með auðveldum hætti náð þér í blaðið.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.