Jöfn kynjahlutföll hjá embætti Lögreglustjórans í Eyjum
Konurnar hjá embættinu stilltu sér upp fyrir ljósmynd í tilefni af áfanganum. Ljósmynd/Lögreglan í Vestmannaeyjum.

Embætti Lögreglustjórans í Vestmannaeyjum hefur náð eftirtektarverðum áfanga í jafnréttismálum. Í fyrsta sinn eru nú jöfn hlutföll karla og kvenna bæði meðal starfsfólks embættisins og í útkallsliði lögreglu. Jafnframt mældist embættið hæst allra löggæslustofnana landsins þegar kemur að jafnrétti í könnun Sameykis um Stofnun ársins 2025 – árangur sem endurspeglar markvissa vinnu og sterka liðsheild. Frá þessu er greint á facebooksíðu lögrerglunnar í Vestmannaeyjum.

Tilkynningin í heild sinni:

Við erum stolt af því að tilkynna að nú eru jöfn hlutföll karla og kvenna við embætti Lögreglustjórans í Vestmannaeyjum. Eru hlutföllin jöfn meðal starfsfólks embættisins sem og í útkallsliði lögreglu.

Sömuleiðis mældist embætti Lögreglustjórans í Vestmanneyjum hæst allra löggæslustofnanna í þeim þætti sem snýr að jafnrétti í könnun Sameykis um Stofnun ársins 2025.

Við erum hæstánægð með þennan árangur og auðvitað starfsfólk embættisins sem á stærstan þátt í þessum frábæra árangri.

Nýjustu fréttir

Áætlunarflug framlengt vegna stöðunnar í Landeyjahöfn
Álfsnesið þurfti frá að hverfa
Íris um samgöngumálin
Hoppað á vagninn
Samgöngur – Bréf til forsætis- og innviðaráðherra
Úrslitakeppnin hjá stelpunum að hefjast
Dýpið minnkaði um meter í síðustu brælu
Opinn borgarafundur í Eyjum
viðburðir
Andres Stefan Mbl
15. apríl 2026
20:00
Borgarafundur í Höllinni
Höllin
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.