
Fjórtán gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar þann 16. maí nk. Prófkjörið verður föstudaginn 13. mars og stefnt er á að hefja utankjörfundaratkvæðagreiðslu á morgun, þriðjudaginn 3. mars í Ásgarði. Hægt verður að kjósa milli 16:00 til 18:00 virka daga og kl. 13:00 til 15:00 um helgar.
Trausti Hjaltason opnaði kosningaskrifstofu í gær, en hann gefur kost á sér í fyrsta sætið í prófkjörinu. Skrifstofan er á efri hæð í gamla TM húsinu þar sem áður var skrifstofa Laxeyjar og Fiskistofu við Strandveg. Þar verður opið alla daga fram að prófkjöri.
„Það var góð mæting á opnunina og ég er bjartsýnn á árangur. Tíminn er fljótur að líða og eins gott að láta hendur standa fram úr ermum,“ segir Trausti sem teflir fram á mörgum vígstöðvum í baráttunni.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.