Rauði krossinn í Eyjum fagnaði 85 árum með opnu húsi
Boðið var upp á veitingar og kynningu á fjölbreyttri starfsemi félagsins. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Vestmannaeyjadeild Rauða krossins var með opið hús í Arnardrangi í dag í tilefni af 85 ára afmæli deildarinnar. Fjöldi gesta lagði leið sína á staðinn, þar sem boðið var upp á veitingar og kynningu á starfsemi félagsins.

Afmælið markar mikilvæg tímamót í sögu félags sem hefur lengi verið órjúfanlegur hluti af samfélaginu í Eyjum. Í umfjöllun Eyjafrétta í gær kom fram að Rauði krossinn hafi frá fyrstu árum sinnt mikilvægu velferðarstarfi, átt þátt í uppbyggingu sjúkraflutninga og gegnt lykilhlutverki í neyðaraðstoð, meðal annars í gosinu 1973.

Starfsemin er enn fjölbreytt í dag og byggir sem fyrr á framlagi sjálfboðaliða. Opið hús dagsins gaf gestum tækifæri til að kynnast starfinu betur og rifja upp merka sögu Rauða krossins í Vestmannaeyjum.

Óskar Pétur Friðriksson og Halldór B. Halldórsson mættu í afmælið og má sjá myndefni þeirra hér að neðan.

Play Video

Nýjustu fréttir

Síðasti opni fundur Vina í bata á mánudag
ÍBV tapaði með sex mörkum á Akureyri
Elmar með tíu stoðsendingar í sigri Nordhorn
Frá borholusjó til flögusalts
46 íbúðir í byggingarferli í Eyjum – 20 fullbúnar en ónotaðar
Júníus Meyvant með tónleika í Alþýðuhúsinu
Fyrsti leikurinn undir stjórn Bergvins
Loppumarkaður á Heiðarvegi um helgina
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.