ÍBV sækir KA heim í öðrum leik liðanna í 8-liða úrslitum úrslitakeppni Olís deildar karla í handbolta í dag, sunnudaginn 29. mars. Leikurinn fer fram í KA-heimilinu á Akureyri og hefst klukkan 17:00.
Eyjamenn eru komnir með bakið upp við vegg eftir dramatískt tap í fyrsta leik liðanna í Vestmannaeyjum á miðvikudag, þar sem KA hafði betur 33-34 eftir tvíframlengdan leik.
Staðan í einvíginu er því 1-0 fyrir KA og ljóst að allt er undir hjá ÍBV. Með sigri knýja Eyjamenn fram oddaleik, en með tapi lýkur þeirra þátttöku í úrslitakeppninni.
Handknattleiksdeild ÍBV hefur kallað eftir stuðningi og hvetur Eyjamenn til að mæta norður og styðja liðið í þessum lykilleik. Ljóst er að leikurinn verður hörkuskemmtun þar sem baráttan verður í fyrirrúmi frá fyrstu mínútu.
„Það er allt undir í þessum leik og við þurfum alla orku, alla trú og alla baráttu,“ segir meðal annars í hvatningu frá deildinni, sem telur einvígið langt frá því að vera búið.
Greint var frá því í liðinni viku að ÍBV verði áfram án leikstjórnandans Andra Erlingssonar sem er frá vegna meiðsla á ökkla. Fjarvera hans vegur þungt, en liðið sýndi í fyrsta leik að það hefur burði til að veita KA harða keppni.
Í þeim leik var Dagur Arnarsson markahæstur Eyjamanna með tíu mörk og Petar Jokanovic átti stórleik í markinu með 20 varin skot. Leikurinn hefst klukkan 17:00 og verður í beinni útsendingu í Sjónvarpi Símans. Nánari umfjöllun verður á Eyjafréttum að leik loknum.
Hugmyndin að húsinu fæddist eftir samtal við vini
Jói Listó – Ótrúlegur ferill mikils listamanns
Enginn kemst áfram í lífinu á ljóðum einum saman
Alla Stella keypti gamalt hús og dánarbú fylgdi með
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins lagður fyrir…
Minnisvarði um botnlausa sýndarþörf Eyjamanna brátt vígður