Rafmagn fór af í Vestmannaeyjum og víðar klukkan 20.00. Fram kemur á í tilkynningu frá stjórnstöð Landsnets að stór truflun hafi orðið í kerfinu, niðurkeyrsla á stóriðju og fl. Þá segir að landskerfið hafi splittatst í tvær eyjur og að tíðnin hafi farið í 53.5hz. Fram kemur að frekari upplýsingar komi síðar.
Hluti bæjarins fékk svo aftur rafmagn um kl. 20.15. Í annari tilkynningu Landsnets segir að elding í Búrfellslínu 1 sé talin orsökin fyrir trufluninni.
Tilkynningar Landsnets:
6.4.2026 kl. 20:00
Stór truflun í kerfinu, niðurkeyrsla á stóriðju og fl.
Landskerfið splittaðist í tvær eyjur. tíðnin fór í 53.5hz. Frekari upplýsingar koma síðar.
6.4.2026 kl. 20:13
Stór truflun (uppfærsla)
Elding í Búrfellslínu 1 er talin orsökin fyrir trufluninni. Rafmagnslaust er í Vestmanneyjum.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.