Eyþór Harðarson var spurður út í kærumál vegna heilsuræktar í pontu á borgarafundi í Höllinni 15. apríl sl. Hann talar með oflæti um þá einstaklinga sem telja að hið opinbera hafi að sér vegið og fer að auki með rangfærslur í þessu tiltekna máli.
Hann segir tilboðið hafi verið sniðið þannig að minnst tveir aðilar ofan af landi hafi átt möguleika.
Hver er hinn aðilinn sem Vestmannaeyjabær hafði í huga sem mögulegan tilboðsgjafa? Af hverju að sníða útboðið að þessum tveimur, frekar en taka mið af þörfum markaðarins hér? Hvers vegna eru allir aðrir aðilar á markaðnum útilokaðir utan þessara tveggja?
Þá eigum við eftir að nefna að heimafólk er augljóslega útilokað.
Það er ekki svo, að kærumálið sem stendur yfir núna vegna seinna útboðs heilsuræktar, hafi verið vísað frá í heild sinni, eins og lá í orðum Eyþórs á fundinum. Annað hvort var hann illa undirbúinn, eða hann reynir að slá ryki í augu almennings.
Hann er að vísa í bráðabirgðaniðurstöðu sem var gerð 14. apríl. Einungis kröfu um stöðvun innkaupaferlis var hafnað.
Þrátt fyrir að kæra frá okkur hafi verið komin fram á tilboðstíma og í henni krafa um stöðvun á innkaupaferli, þá hélt Vestmannaeyjabær áfram ferlinu. Tilboðin voru opnuð í lok tilboðstíma og Vestmannaeyjabær ákvað að taka tilboði Lauga. Þegar tilboði er tekið með þessum hætti, er í reynd kominn á bindandi samningur beggja aðila.
Í lögum um opinber innkaup kemur fram að eftir að bindandi samningur hafi komist á, verður hann hvorki felldur úr gildi né honum breytt þótt ákvörðun kaupanda um framkvæmd útboðs hafi verið ólögmæt.
Þess vegna á kærunefnd útboðsmála engra kosta völ annan en að hafna kröfu um stöðvun innkaupaferlis.
Á þessum tímapunkti var ekki tekin efnisleg afstaða til annarra mála í kærunni, það verður gert síðar. Sem þýðir að við bíðum enn lokaniðurstöðu í málinu.
Fyrir utan þessar rangfærslur í svari Eyþórs, hefur Vestmannaeyjabær haldið því fram að tilboð Lauga hafi verið “hagstæðara”. Með því má ætla að Laugar hafi boðið hærra verð, en svo er ekki.
Tilboð Lauga hljóðaði upp á 244.200.000 kr. en tilboð Sporthallarinnar (okkar) upp á 270.453.965 kr. Hvað gerir tilboð Lauga hagkvæmara?
Gefin voru stig fyrir heildar tilboðsverð, fjölda stöðva og jafnlaunavottun.
Í heildina munar bara 0,9 stigum á tilboðunum, en það sem hefur úrslitaáhrif er jafnlaunavottun, sem Laugar hafa, en Sporthöllin ekki. Þetta atriði þykir okkur sérkennilegt að skipti svo miklu máli. Sérstaklega í ljósi þess að verið er að afnema þetta fyrirbæri og gert ráð fyrir að vinnu við það ljúki innan árs.
Umrætt atriði gaf fimm stig, en vert er að nefna að í nýja útboðinu var engu orði minnst á tækjabúnað, sem þó var stór hluti af fyrra útboði og ætti að skipta, að minnsta kosti einhverju máli, við val á heilsurækt.
Þegar einstaklingar kæra mál sem bærinn hefur með höndum, eins og við höfum gert í þessu máli, er það ekki af einskærri þörf fyrir að kæra, eða illkvittni í garð stjórnvalda. Þetta er ekki mál sem við fórum í af léttúð eða í gamni og mér finnst vont að heyra oddvita Sjálfstæðisflokksins tala með þessum hætti á opinberum fundum.
Ef kærumálin þykja orðin aðeins of mörg og óþægileg, ætti kannski að athuga vinnubrögðin hinu megin við borðið, í stað þess að benda á borgarana sem eru að reyna að verja sig og sitt lífsviðurværi.
Þegar World Class verður búið að opna hér í Eyjum, og á þeim skala sem það er fyrirætlað. Þá verður líklega ekki pláss fyrir aðra aðila á markaðnum, sem er ekki stærri en raun ber vitni hér í Eyjum.
Það var óneitanlega hjákátlegt að fylgjast með umræðunni um matvöruverslanir á þessum sama borgarafundi, þó vandinn sé raunverulegur þegar staðið er við tómar hillurnar.
Þá er ekki annað hægt en velta upp þeirra spurningu hvort staðan verði sú sama með heilsuræktina, þegar reksturinn verður alfarið kominn í hendur fólks uppi á landi.
Svona eins og þegar enn ein keðjan opnaði verslun í Eyjum og var búin að setja blómabúðir bæjarins á hausinn, þegar reksturinn af þeirra eigin blómabúð var ekki alveg nógu mikill skv. excel skjalinu, og henni var á endanum lokað.
Fólkið í excel skjalinu hefur ekki alveg sömu hagsmuni og fólkið sem býr hér í Eyjum.
Eygló Egilsdóttir &
Garðar Heiðar Eyjólfsson