Aldan enn of há fyrir Álfsnes

Ekki tókst að hefja dýpkun í Landeyjahöfn á flóðinu síðdegis í dag þar sem aðstæður reyndust erfiðar. Samkvæmt upplýsingum frá G. Pétri Matthíassyni, upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar, var aldan yfir viðmiðunarmörkum þegar reynt var að hefja vinnu. „Aldan var í hærri kantinum á flóðinu klukkan 17 og þótt dýpkunarskipið hafi reynt var hún yfir mörkum og ekki […]
Kjarnaboranir hefjast í Eyjum: „Stærsti áfangi í sögu félagsins til þessa“

Í dag kom kjarnaborinn til Vestmannaeyja og um helgina hefjast mikilvægar kjarnaboranir sem marka fyrsta skref í umfangsmiklum rannsóknum á mögulegri vegtengingu milli eyja og lands. Verkefnið er á vegum Eyjaganga ehf. og felur í sér boranir á tveimur lykilstöðum – annars vegar á Eiðinu hér í Eyjum og hins vegar í Landeyjasandi við Kross. […]
Vel heppnaður fundur

Hressilegur og fjölsóttur var fundurinn sem Morgunblaðið stóð fyrir í Höllinni í Vestmannaeyjum í gær. Fundinum var stýrt af blaðamönnum Morgunblaðsins, Andrési Magnússyni og Stefáni Einari Stefánssyni, sem stóðu sig með miklum ágætum. Á palli voru Arndís María Kjartansdóttir, oddviti og bæjarstjóraefni Eyjalistans, Sæunn Magnúsdóttir, bæjarstjóraefni Miðflokksins, og Eyþór Harðarson. Arndís og Sæunn koma nýjar […]
Krefjandi umræða styrkir okkur

Ég er þakklátur fyrir samtölin og þann hlýhug sem ég hef fundið síðustu vikur. Að lenda í öðru sæti í prófkjöri þar sem fjórtán flottir einstaklingar tóku þátt er eitthvað sem ég er stoltur og ánægður með, en fyrst og fremst minnir það mig á hversu margir eru reiðubúnir til að leggja sitt af mörkum […]
Viðbragð við svari Eyþórs

Eyþór Harðarson var spurður út í kærumál vegna heilsuræktar í pontu á borgarafundi í Höllinni 15. apríl sl. Hann talar með oflæti um þá einstaklinga sem telja að hið opinbera hafi að sér vegið og fer að auki með rangfærslur í þessu tiltekna máli. Hann segir tilboðið hafi verið sniðið þannig að minnst tveir aðilar […]
Sterkari grunnskóli og öflugri framtíð

Hvað er það sem við viljum fá út úr grunnskólum okkar hér í Vestmannaeyjum? Viljum við framúrskarandi árangur og hvað felst í honum? Eru það eingöngu háar einkunnir, eða er það að ala upp sjálfstæða, hamingjusama og virka þjóðfélagsþegna sem eru tilbúnir út í lífið? Fjárfesting í framtíðinni Grunnskóli Vestmannaeyja er stærsti vinnustaður bæjarins. Þar […]
Samgöngur – ítrekuð áskorun til þeirra sem ráða

Ég sendi ykkur póst varðandi samgöngur til Eyja síðastliðinn sunnudag. Ég hef reyndar ekki fengið svar við þeim pósti, en ákvað engu að síður að senda annan til að vekja enn meiri athygli á okkar málum. Ég er að hugsa um að halda þessu áfram líkt og dagbók um líf okkar hér í Eyjum og […]
Jakob Frímann ásamt leynigesti á Hljómey Xtra í samstarfi við Aukakrónur Landsbankans

Jakob Frímann Magnússon mun koma fram í Alþýðuhúsinu laugardaginn 25. apríl nk. Hann mun þar ásamt sérvöldum leynigestum sem ástunda Reykingar, Taka til við að tvista , Horfa í roða fortíðar, nútíðar og framtíðar, hitta fyrir Jack Magnet, Hveitibjörn, Frímann flugkappa, Jobba Maggadon og fleiri kúnstuga karaktera ásamt því að trúa okkur fyrir áður óheyrðum skandalasögum […]
Boltinn farinn að rúlla – og kosningabaráttan líka

Nýjasta tölublað Eyjafrétta endurspeglar vel það sem brennur helst á Vestmannaeyingum um þessar mundir: pólitík í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga, samgöngur og innviðir, sterkt mannlíf og öflugt íþrótta- og menningarlíf. Blaðið er fjölbreytt að vanda, en þó er ljóst að kosningarnar setja sterkan svip á efnistökin. Strax í upphafi er dregin upp alvarleg mynd af samgöngustöðunni. Fjallað […]
Spurt og svarað: Rannveig frá Sjálfstæðisflokknum

Eyjafréttir kynna hér frambjóðendur fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar í Vestmannaeyjum. Hvert framboð valdi fimm fulltrúa af sínum lista til að svara spurningum um bakgrunn, áherslur og sýn á framtíð samfélagsins Nafn: Rannveig Ísfjörð Aldur: 38 ára Fjölskylda: Ég er gift Pálma Harðarsyni og saman eigum við fimm börn: Írisi Emmu (12 ára), Hörð Kára (8 ára), Hákon Þór […]