Hressilegur og fjölsóttur var fundurinn sem Morgunblaðið stóð fyrir í Höllinni í Vestmannaeyjum í gær. Fundinum var stýrt af blaðamönnum Morgunblaðsins, Andrési Magnússyni og Stefáni Einari Stefánssyni, sem stóðu sig með miklum ágætum.
Á palli voru Arndís María Kjartansdóttir, oddviti og bæjarstjóraefni Eyjalistans, Sæunn Magnúsdóttir, bæjarstjóraefni Miðflokksins, og Eyþór Harðarson. Arndís og Sæunn koma nýjar inn í forystusætin en Eyþór er að ljúka sínu öðru kjörtímabili sem bæjarfulltrúi.
Fundargestir voru um 200 talsins, sem telst gott á pólitískum fundi, og þar fengu íbúar tækifæri til að kynnast framboðunum af fyrstu hendi. Oddvitar og bæjarstjóraefni þriggja framboða stigu á svið, kynntu sig, fóru yfir helstu áherslumál og gerðu grein fyrir stefnu sinni.
Umræður voru fjörugar og helstu málin voru samgöngur, atvinnumál, skipulag og uppbygging innviða til að mæta fjölgun íbúa í Vestmannaeyjum. Þau voru sammála um flest, þó skiptar skoðanir væru um forgangsröðun.
Það sem vegur þyngst er ný vatnsleiðsla sem lögð verður í sumar og kostar um 3 milljarða. Ríkið leggur til 800 milljónir króna, sem þau eru sammála um að sé of lítið. Hér er um almannavarnamál að ræða og telja þau ósanngjarnt að rúmir 2 milljarðar lendi á herðum íbúa í Vestmannaeyjum.
Upptaka af fundinum er aðgengileg á vef Morgunblaðsins. Fleiri myndir frá fundinum má sjá hér að neðan.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.