Spurt og svarað: Rannveig frá Sjálfstæðisflokknum
Rannveig Ísfjörð frá Sjálfstæðisflokknum.

Eyjafréttir kynna hér frambjóðendur fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar í Vestmannaeyjum. Hvert framboð valdi fimm fulltrúa af sínum lista til að svara spurningum um bakgrunn, áherslur og sýn á framtíð samfélagsins

Nafn: Rannveig Ísfjörð

Aldur: 38 ára

Fjölskylda: Ég er gift Pálma Harðarsyni og saman eigum við fimm börn: Írisi Emmu (12 ára), Hörð Kára (8 ára), Hákon Þór (6 ára), Guðmund Karl (3 ára) og Önnu Kristínu (9 mánaða). Fjölskyldan mín er mín stærsta hvatning og mótar sterkt hvernig ég horfi á samfélagið og framtíð þess.

Menntun og störf: Ég er með B.Sc. gráðu í byggingartæknifræði og M.Sc. gráðu í byggingarverkfræði með sérhæfingu í framkvæmdastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík. Þá hef ég lokið AMPE í verkefnastjórnun og er nú að ljúka meistaragráðu í forystu og stjórnun með áherslu á mannauðsmál frá Háskólanum á Bifröst. Ég starfa í dag sem byggingarfulltrúi hjá Vestmannaeyjabæ en hef áður starfað í byggingargeiranum hjá einkaaðilum. Þar áður starfaði ég hjá Eimskip, meðal annars sem afgreiðslustjóri Herjólfs og síðar við ferlastýringu.

Fyrri afskipti af stjórnmálum: 

Ég hef verið virk í bæjarmálum frá árinu 2018. Ég sat í stjórn bæjarmálafélagsins Fyrir Heimaey frá stofnun félagsins og hef verið formaður þess lengst af frá þeim tíma. Á árunum 2018–2022 var ég varamaður í fræðsluráði. Í sveitarstjórnarkosningum 2022 skipaði ég 8. sæti á lista félagsins og hef á þessu kjörtímabili setið sem aðalmaður í framkvæmda- og hafnarráði og síðar í fjölskyldu- og tómstundaráði.

Af hverju Sjálfstæðisflokkurinn? Ég tel mikilvægt að byggja samfélag á ábyrgð, frelsi og skynsamlegri nýtingu fjármuna. Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á sterka innviði, öflugt atvinnulíf og ábyrga stjórnun sem ég tel lykilatriði fyrir Vestmannaeyjar. Mér finnst mikilvægt að halda áfram að byggja bæinn upp á þeim grunni sem hefur verið lagður, með skýrri framtíðarsýn og stöðugleika sem nýtist samfélaginu.

Brýnustu verkefni: Að halda áfram uppbyggingu innviða, húsnæðis og atvinnulífs með skýrri framtíðarsýn. Jafnframt að styrkja fræðslumálin áfram eins og gert hefur verið undanfarin ár og standa vörð um helstu hagsmunamál Vestmannaeyja.

Hvaða málaflokka munt þú leggja áherslu á: Ég mun leggja áherslu á að efla fjölskylduvænt samfélag, styrkja fræðslumál og standa vörð um helstu hagsmunamál Vestmannaeyja en þetta eru allt lykilþættir í því að gera Vestmannaeyjar að góðum stað til að búa á og starfa.

Hvernig sérðu framtíð Vestmannaeyja: Ég sé Vestmannaeyjar áfram sem sterkt og fjölskylduvænt samfélag með öflugt atvinnulíf og góða þjónustu, þar sem langtímahugsun og skynsamleg uppbygging ráða för.

Hvað hefur þú fram að færa sem fulltrúi Sjálfstæðisflokksins: Ég kem með metnað, faglega þekkingu og reynslu úr stjórnsýslu, nefndarstörfum, námi og starfi. Ég er lausnamiðuð og legg áherslu á fagmennsku, heiðarleika og ábyrgð í því sem ég tek mér fyrir hendur.

Hvað skiptir þig mestu máli persónulega varðandi Vestmannaeyjar? Að halda áfram að byggja upp gott samfélag fyrir fjölskyldur og börn, þar sem fólk vill búa, starfa og ala upp börn til framtíðar.

Nýjustu fréttir

Spurt og svarað: Sonja frá Miðflokknum
ÍBV sækir Hauka heim í öðrum leik undanúrslita
ÍBV tapaði á Hlíðarenda
Bæjaryfirvöld kalla eftir tafarlausum aðgerðum vegna samgöngustöðu
Baldur fyrr í áætlun vegna biðlista
Fiskur ríflega helmingur alls vöruútflutnings
Milljarðaverkefni í Eyjum: Lægsta tilboð 1,42 milljarðar
Staðfestur kerfisbrestur! Hver ber ábyrgð?
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.