Samgöngur - ítrekuð áskorun til þeirra sem ráða
Þórunn Pálsdóttir, hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir, skrifar og vill að fleiri láti til sín heyra.
Þórunn: Hvað ferminguna á laugardaginn varðar þá veit ég ekki hversu margir gestir munu mæta, þar sem dýpkun í Landeyjahöfn stendur ekki yfir. Ég mun líklega ekki byrja að baka fyrr en á föstudaginn, þegar ég sé hvort siglt verður um Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn.

Ég sendi ykkur póst varðandi samgöngur til Eyja síðastliðinn sunnudag. Ég hef reyndar ekki fengið svar við þeim pósti, en ákvað engu að síður að senda annan til að vekja enn meiri athygli á okkar málum. Ég er að hugsa um að halda þessu áfram líkt og dagbók um líf okkar hér í Eyjum og leyfa ykkur þannig að fylgjast með. Ég hef það á tilfinningunni að ráðuneytið geri sér ekki fulla grein fyrir því hversu erfiðar samgöngur hafa verið hér í vetur, og því langar mig að gefa ykkur innsýn í það.

Heyrst hefur að búið sé að framlengja samning Innviðaráðuneytisins við Nordlandair um ríkisstyrkt flug til Vestmannaeyja og að sá samningur gildi til 1. maí. Ég hef þó ekki séð þetta auglýst á vef ráðuneytisins og veit því ekki hvort þetta sé rétt. Ég spyr: Hvenær mun flug hefjast og hversu oft í viku verður flogið til Eyja? Ég kalla eftir því að flug verði í boði alla daga vikunnar, en ekki aðeins fjóra daga. Ef þetta reynist rétt viljum við engu að síður þakka fyrir að samningurinn var framlengdur. Það hefði þó verið betra að taka þessa ákvörðun fyrr, þar sem ljóst var að Landeyjahöfn yrði ekki tilbúin fyrir reglubundnar siglingar.

Dýpkunarskipið Álfsnes kom til Landeyjahafnar síðastliðinn sunnudag til að hefja dýpkun. Það gekk ekki betur en svo að dýpið reyndist of lítið til að skipið gæti starfað, samkvæmt því sem sagt er. Álfsnes fór því aftur til Þorlákshafnar í gær, þar sem veðurspáin er óhagstæð fyrir dýpkun. Á morgun, fimmtudag, er spáð betra veðri og vonandi sjáum við skipið aftur í Landeyjahöfn á MarineTraffic. Ég spyr hvort sé til skoðunar að fá hingað – strax, og ekki seinna en í gær – dýpkunarskip sem ræður betur við krefjandi aðstæður en Álfsnes.

 

Þórunn: Í Vestmannaeyjum búa um 4.700 manns sem þurfa að sækja þjónustu upp á land. Hingað vilja einnig koma gestir og ferðamenn til að heimsækja þennan fallega stað. Hér eru fjölmörg fyrirtæki sem verða af verulegum tekjum vegna þess að ekki er hægt að sigla um Landeyjahöfn.

 

Í Vestmannaeyjum búa um 4.700 manns sem þurfa að sækja þjónustu upp á land. Hingað vilja einnig koma gestir og ferðamenn til að heimsækja þennan fallega stað. Hér eru fjölmörg fyrirtæki sem verða af verulegum tekjum vegna þess að ekki er hægt að sigla um Landeyjahöfn. Þar má nefna veitingastaði, hótel, gistiheimili, sjávarútvegsfyrirtæki og byggingarfyrirtæki. Þá er nú verið að byggja upp laxeldi sem vonandi mun skila miklum tekjum í ríkissjóð. Allir þessir aðilar þurfa á öruggum, tíðum og skjótum samgöngum að halda milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja.

Ófær Landeyjahöfn hefur einnig mikil áhrif á íþróttafólk. Löng ferðalög, sjóveiki og óvissa eru ekki aðstæður sem hægt er að bjóða okkar besta fólki eða þeim sem hingað koma til að keppa við ÍBV.

Herjólfur er nú í rúmlega fjögurra klukkustunda siglingu aðra leið til Þorlákshafnar vegna bilunar. Ef kemur í ljós að hann þarf að fara í slipp er líklegt að Baldur leysi hann af. Ef Landeyjahöfn er ekki opin fyrir slíkar siglingar er staðan erfið, þar sem sú ferja tekur færri bíla og aðeins örfáar kojur eru í boði. Þá hef ég einnig heyrt að Baldur hafi ekki haffærnisskírteini til siglinga til Þorlákshafnar.

Varðandi son minn, sem fór í aðgerð, þá fór hann með skipi til Þorlákshafnar. Samningur um flug til Eyja hafði ekki verið framlengdur á þeim tíma, og jafnvel þótt svo hefði verið þá var hann bókaður í aðgerð á miðvikudegi. Ekki er boðið upp á flug frá Eyjum á þriðjudögum og miðvikudögum, sem sýnir enn frekar hversu ófullnægjandi fyrirkomulagið er.

Hvað ferminguna á laugardaginn varðar þá veit ég ekki hversu margir gestir munu mæta, þar sem dýpkun í Landeyjahöfn stendur ekki yfir. Ég mun líklega ekki byrja að baka fyrr en á föstudaginn, þegar ég sé hvort siglt verður um Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn.

Þar sem innviðaráðherra virðist ekki hafa fulla yfirsýn yfir ástandið hér í Eyjum, miðað við nýlegt viðtal, hvet ég alla íbúa til að segja frá sinni reynslu af samgöngum og senda tölvupóst til ráðuneytisins og forsætisráðherra.

irn@irn.is
kristrun.frostadottir@althingi.is

Með kveðju og von um svör og aðgerðir,
Þórunn, íbúi í Vestmannaeyjum

 

Nýjustu fréttir

Hoppukastalar, pylsur og Arsenal-stemning í Höllinni
Hjónin Rósa og Ágúst deila áhuga á handverki
Eyjakonur sækja Stjörnuna heim í mikilvægum leik
45 nemendur útskrifuðust frá FÍV
Eldri hjón deila 336 milljónum með börnum og barnabörnum
Hipsumhaps á Þjóðhátíð
Stuttir túrar skiluðu góðum afla
Loðnan skilaði sjómönnum milljónum á fáeinum vikum

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.