Aldan enn of há fyrir Álfsnes
Aldan yfir mörkum á flóði klukkan 17
Alfsnes_DSC_1851
Álfsnes fyrir utan Landeyjahöfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson

Ekki tókst að hefja dýpkun í Landeyjahöfn á flóðinu síðdegis í dag þar sem aðstæður reyndust erfiðar. Samkvæmt upplýsingum frá G. Pétri Matthíassyni, upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar, var aldan yfir viðmiðunarmörkum þegar reynt var að hefja vinnu.

„Aldan var í hærri kantinum á flóðinu klukkan 17 og þótt dýpkunarskipið hafi reynt var hún yfir mörkum og ekki unnt að dýpka,“ segir Pétur.

Vonast til að vinna geti hafist í nótt

Horfur eru þó betri á næstu klukkustundum en spár gera ráð fyrir að aldan lækki í nótt og á morgun. „Það er spáð lækkandi öldu í nótt og á morgun og vonandi næst að hefja dýpkun í nótt,“ segir Pétur. Dýpkunarframkvæmdir við Landeyjahöfn eru mjög háðar sjólagi og aðeins hægt að vinna þegar alda er innan ákveðinna marka, sem hefur ítrekað tafið framgang verksins undanfarna daga.

Nýjustu fréttir

Gleðilegan kjördag kæru Vestmannaeyingar!
Við gefum loforð og efnum það
Lokahóf handboltans fór fram í gærkvöldi
Lengi lifi lýðræði á Íslandi!
Veljum reynsluna
Kjósum með framtíðina í huga
Kona fer í framboð
Kjósum með hjartanu!
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.