Fólkið okkar og framtíðin
Anton Örn Björnsson

Aðsend grein

Anton Örn Björnsson

Það var ánægjulegt að sjá ársreikning Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2025. Bærinn okkar stendur sterkt og reksturinn var jákvæður um 781 milljón króna. Þessi góða staða er traustur grunnur sem við getum byggt ofan á, en hún krefst þess líka að við spyrjum okkur að því hvað ætlum við að gera við þennan árangur? 

Fyrir Eyjalistanum er góður rekstur ekki markmið í sjálfu sér, heldur tæki til að gera gott samfélag enn betra. Þegar gengur vel verðum við að þora að fjárfesta í grunnstoðunum okkar. Við hjá Eyjalistanum trúum því að sterkir innviðir og öflug þjónusta séu besta leiðin til að tryggja vellíðan allra bæjarbúa.

Innviðir eru fjárfesting í fólki

Eyjalistinn sér fram á mikla fólksfjölgun og vöxt í samfélaginu á næstu árum, sem er dásamlegt merki um lífskraftinn í Eyjum. En hvernig ætlum við að mæta þessari fjölgun?

Við megum ekki endalaust safna í sjóði á meðan það þrengir að börnum okkar og fjölskyldum. Þess vegna vill Eyjalistinn flýta uppbyggingu nýs leikskóla og móta skýra framtíðarsýn fyrir skólabyggingarnar okkar sem og íþróttasvæðið áður en það verður of seint. Við verðum að geta treyst því að grunn viðhaldi sé sinnt, hvort sem það er að skipta um ljósaperur í íþróttamannvirkjum eða huga að húsbúnaði í skólabyggingunum okkar.

Fjárfesting í innviðum snýst líka um að hlúa að því sem við höfum og gera það aðgengilegra. Við þurfum að ráðast í endurbætur á Kviku til að tryggja öryggi gesta og tryggja Lista- og menningarfélaginu varanlegt húsnæði til að halda áfram með sitt góða starf. Þá telur Eyjalistinn mikil tækifæri felast í því að færa félagsmiðstöðina Féló í meiri nálægð við Barnaskólann. Með því að koma starfseminni nær daglegu lífi unglinganna okkar eflum við starfið og gerum það mun aðgengilegra þeim sem sækja þangað. Þá yrði hægt að samnýta Féló með skólanum.

Hækka þarf frístundastyrkinn til muna til að mæta fjölskyldum og huga þarf að gjaldskrám bæjarins. Þegar vel gengur er ekki rétt að fjölskyldur fái að njóta góðs af því?

Samhliða uppbyggingu hér heima verðum við að vera óþreytandi í hagsmunagæslu gagnvart ríkinu. Öruggar samgöngur og trygg heilbrigðisþjónusta eru grundvallarréttindi sem við megum aldrei láta undan í. Við þurfum að fylgja eftir mikilvægum verkefnum á borð við nýja vatnslögn og stórskipahöfn á Eiðinu, sem eru lífæðar samfélagsins og atvinnulífsins. Einnig brennur það á Eyjalistanum að við tryggjum öldruðum í bænum okkar þá þjónustu og virðingu sem þeir eiga skilið. Frístundastyrkur eldri borgara er tækifæri fyrir okkur að gera vel við þá sem hafa byggt upp okkar góða samfélag.

Með hjartað á réttum stað

Ég viðurkenni það fúslega að þetta er allt nýtt fyrir mér. Ég er kennari, faðir og hógvær að eðlisfari. Að bjóða sig fram í 2. sæti á Eyjalistanum krefst þess að ég stígi út fyrir þægindarammann og sýni á mér allar hliðar. En drifkrafturinn minn er skýr. Ég vil nýta kraftinn sem býr í sterkum bæjarsjóði til að styrkja samfélagið okkar með því að fjárfesta í okkar innviðum.

Eyjalistinn er félagshyggju framboð. Félagshyggja í mínum augum snýst um að enginn verði eftir. Að við nýtum fjármunina í nærumhverfið okkar, listir, menningu og menntun. Við eigum að nýta hagnaðinn til að gera lífið í Eyjum auðveldara og skemmtilegra fyrir allar fjölskyldur.

Góður ársreikningur gefur okkur svigrúm til að láta verkin tala. Við hjá Eyjalistanum erum tilbúin í þá vegferð, með hagsmuni heildarinnar og framtíð barnanna okkar að leiðarljósi.

 

Anton Örn Björnsson

Höfundur skipar 2. sæti á Eyjalistanum.

Nýjustu fréttir

Spurt og svarað: Rannveig frá Sjálfstæðisflokknum
Fólkið okkar og framtíðin
ÍBV tapaði heima í einvíginu gegn Haukum
Óþolandi óvissa með samgöngur til Vestmannaeyja
Fyrirliðinn lék sinn 300. deildarleik
Baldur leysir Herjólf af
Eyjafréttir standa við „samsuðuna“
Vonast til að dýpkun hefjist á fimmtudag

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.