Jakob Frímann ásamt leynigesti á Hljómey Xtra í samstarfi við Aukakrónur Landsbankans
Jakob Frímann Magnússon

Jakob Frímann Magnússon mun koma fram í Alþýðuhúsinu laugardaginn 25. apríl nk. Hann mun þar ásamt sérvöldum leynigestum sem ástunda Reykingar, Taka til við að tvista , Horfa í roða fortíðar, nútíðar og framtíðar, hitta fyrir Jack Magnet, Hveitibjörn, Frímann flugkappa, Jobba Maggadon og fleiri kúnstuga karaktera ásamt því að trúa okkur fyrir áður óheyrðum skandalasögum úr undirheimunum.

Þetta verður kósýkvöld í Alþýðuhúsinu laugardaginn 25. apríl með annáluðum Stuðmanni sem kann að leiða óborganlegt spil, spaug og spjall….og fleiri gestir á svið eru staðfestir.

Sérstök forsala hefst í dag 16. apríl kl 10:00, á midix.is fyrir aukakrónuhafa og alla þá sem hafa keypt miða á Hljómey frá upphafi, þar sem gefinn er 1.000 króna afslátt af miðaverði.

Almenn miðasala hefst svo kl. 10:00 þann 17. apríl.

Almennt miðaverð aðeins 8.990 – takmarkaður fjöldi miða í boði, segir í tilkynningu frá skipuleggjendum.

 

Nýjustu fréttir

Safnahelgin formlega sett – myndir
Magnús Dagur tryggði ÍBV sigur á Víkingi á lokasekúndunum
Steinunn Sigurðardóttir les úr Veislu þrjú á Safnahelgi
Lengri hafnargarðar myndu auka dýpkunarþörf
Rauðátan gæti orðið ný gullnáma sjávarútvegsins
Hvalasöngur og tónlist í sundlauginni á Safnahelgi
Fleiri skólar gætu tekið upp Kveikjum neistann 
Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.