Kjarnaboranir hefjast í Eyjum: „Stærsti áfangi í sögu félagsins til þessa“
Haraldur Pálsson, framkvæmdastjóri Eyjaganga, við kjarnaborinn á Eiðinu þar sem rannsóknarboranir hefjast. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson
TMS M Frett 26 (2)
Tryggvi Már
Sæmundsson

Í dag kom kjarnaborinn til Vestmannaeyja og um helgina hefjast mikilvægar kjarnaboranir sem marka fyrsta skref í umfangsmiklum rannsóknum á mögulegri vegtengingu milli eyja og lands. Verkefnið er á vegum Eyjaganga ehf. og felur í sér boranir á tveimur lykilstöðum – annars vegar á Eiðinu hér í Eyjum og hins vegar í Landeyjasandi við Kross.

Markmið borananna er að afla ítarlegrar þekkingar á jarðlögum og undirstöðu fyrirhugaðrar leiðar. Niðurstöðurnar munu gegna lykilhlutverki við mat á raunhæfni verkefnisins, en áætlað er að þessum fyrsta áfanga rannsóknarinnar ljúki í byrjun júlí.

Eyjafréttir ræddu við Harald Pálsson, framkvæmdastjóra Eyjaganga, um stöðu mála, áskoranir og næstu skref.

Erfitt að koma búnaði til Eyja

Undirbúningur hefur almennt gengið vel að sögn Haralds, þó ákveðnar áskoranir hafi komið upp.

„Skipulagið hefur gengið ágætlega, en það hefur reynst erfitt að fá far fyrir tækin með Herjólfi. Borverktakinn ákvað í síðustu viku að hefja framkvæmdir og þurfti því að vera á biðlista í öllum ferðum vikunnar til að koma búnaðinum yfir. Við vonuðumst til að hann kæmist fyrr, en eftirspurn eftir flutningum með Herjólfi er langt umfram framboð,“ segir hann.

„Ótrúlegt hvað þetta hefur gengið hratt“

Haraldur segir að upphaf borananna sé stór áfangi fyrir félagið. „Það er hreint ótrúlegt að tæplega fimm mánuðum eftir að félagið var stofnað séu rannsóknirnar að hefjast. Þetta er stærsti áfangi í sögu félagsins til þessa,“ segir hann.

Hann bendir á að kjarnaboranir séu annar tveggja lykilþátta í fýsileikamatinu. „Hin meginstoðin eru hljóðendurvarpsmælingar af hafsbotninum. Báðir þessir þættir þurfa að liggja fyrir til að hægt sé að framkvæma heildstætt mat á verkefninu.“

Leitað að styrk og lekt í bergi

Í borununum verður einkum horft til eiginleika bergsins sem skipta sköpum fyrir mögulega gangagerð. „Við erum að skoða styrkleika bergsins og svokallaða lekt, sem segir til um hversu mikið vatn lekur í gegnum það. Þéttleiki bergsins skiptir miklu máli – ef hann er góður er burðargetan meiri og þá þarf síður að grípa til umfangsmikilla styrkinga.“

Hann segir jafnframt ljóst að ákveðnar áskoranir bíði. „Við vitum að efstu metrarnir eru mjög lektir og það verður áskorun að komast niður fyrir þann hluta. Þar fyrir neðan bindum við vonir við að lektin sé minni, sem myndi auðvelda framkvæmdina verulega.“

Niðurstöður liggja fyrir í lok árs

Að loknum þessum áfanga tekur við greiningarvinna sem skiptir sköpum fyrir framhaldið. „Samhliða kjarnaborunum verður farið í hljóðendurvarpsmælingar þar sem mælitæki verður dregið á eftir bát yfir fyrirhugaða gangaleið. Í kjölfarið munu jarð- og verkfræðingar vinna úr gögnunum yfir haustið.“

Haraldur segir að niðurstöður ættu að liggja fyrir í lok árs. „Þá verður hægt að leggja heildarmat á stöðuna og taka ákvörðun um hvort forsvaranlegt sé að halda áfram með frekari rannsóknir.“

Þakkir til íbúa og ákall um vinnufrið

Að lokum vill Haraldur koma á framfæri þökkum til þeirra sem hafa stutt verkefnið. „Við viljum þakka íbúum í Rangárþingi eystra og Vestmannaeyjum fyrir þann stuðning sem við höfum fundið fyrir, sem og þeim fyrirtækjum sem hafa lagt okkur lið.“

Hann biður jafnframt um skilning á meðan rannsóknir standa yfir. „Við leggjum áherslu á að halda almenningi vel upplýstum um gang mála, en biðjum fólk jafnframt um að virða afmarkanir á vinnusvæðum og tryggja verktökum og ráðgjöfum nauðsynlegan vinnufrið.“

Myndatökumennirnir Óskar Pétur Friðriksson og Halldór B. Halldórsson fylgdust með þessum merku tímamótum á Eiðinu í dag.

Play Video

Nýjustu fréttir

Aldan enn of há fyrir Álfsnes
Kjarnaboranir hefjast í Eyjum: „Stærsti áfangi í sögu félagsins til þessa“
Vel heppnaður fundur
Krefjandi umræða styrkir okkur
Viðbragð við svari Eyþórs
Sterkari grunnskóli og öflugri framtíð
Samgöngur – ítrekuð áskorun til þeirra sem ráða
Jakob Frímann ásamt leynigesti á Hljómey Xtra í samstarfi við Aukakrónur Landsbankans
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.