Dómkórinn með glæsilega tónleika
Dómkórinn. Myndir: Óskar Pétur

Dómkórinn í Reykjavík hélt tónleika í safnaðarheimili Landakirkju í gær, laugardaginn 9. maí. Á efnisskrá var tónlist af ýmsum toga, íslensk og erlend, allt frá Palestrina og Grieg, til Hjálmars H. Ragnarssonar og Oddgeirs Kristjánssonar.

Flutningurinn vakti góð viðbrögð áheyrenda. Með kórnum lék Kitty Kovács á píanó og stjórnandi var Eyjamaðurinn Matthías Harðarson dómorganisti.

Tónleikarnir voru haldnir á vegum Dómkórsins í Reykjavík og var aðgangur ókeypis.

Nýjustu fréttir

Aron Valtýsson – Hleypur maraþon fyrir Krabbavörn Vestmannaeyja
Millet-gengið tekur Eyjar alltaf með trompi
Páll aftur á Sprengisandi – Beint í djúpu laugina
Framtíðarsýn um réttlæti og stöðugleika
Fótboltamaðurinn Bjarki Björn Gunnarsson er íþróttamaður mánaðarins
Veðurblíðan í Eyjum í sumar á sér fáar hliðstæður
Fjölbreytt námskeið hjá Visku í haust
Myndlistargyðjan var alltaf í fyrsta sæti
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.