Nýtt tölublað Eyjafrétta er komið út. Blaðið er með fjölbreyttu efni úr samfélaginu, bæjarmálum, íþróttum og atvinnulífi í Vestmannaeyjum. Á forsíðunni eru stelpurnar í ÍBV sem hafa farið fljúgandi af stað í Bestu deildinni.
Sveitarstjórnarkosningarnar eru fyrirferðarmiklar í blaðinu þar sem farið er yfir stöðuna fyrir kosningar, framboðin þrjú og helstu áherslur frambjóðenda. Viðtöl eru meðal annars við Eyþór Harðarson oddvita Sjálfstæðisflokksins, Hildi Rún Róbertsdóttur á lista Eyjalistans og Jóhann Inga Óskarsson á lista Miðflokksins.
Í blaðinu er einnig ítarleg umfjöllun um samgöngumál og Landeyjahöfn þar sem Sigurður Áss Grétarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri siglingasviðs Vegagerðarinnar, fer yfir stöðuna og gagnrýnir að lítið hafi verið gert til úrbóta síðustu ár.
Þekkingarsetur Vestmannaeyja er einnig til umfjöllunar þar sem Hörður Baldvinsson segir verkefnastöðu setursins aldrei hafa verið betri og horfir björtum augum til frekari vaxtar í rannsóknum og nýsköpun.
Sjávarútvegur og humarveiðar fá sitt pláss í blaðinu þar sem fjallað er um góðar kolmunnaveiðar hjá útgerðarfyrirtækjunum í Eyjum og jákvæðar niðurstöður úr könnunarveiðum á humri.
Þá má einnig finna mannlífsviðtal við Láru Skæringsdóttur um ferðalög, jóga og lífsstíl, auk fjölmargra annarra frétta, mynda og viðtala úr Eyjum.
Þar sem það er frídagur í dag, næst því miður ekki að bera blaðið út til áskrifenda fyrr en á morgun, föstudag. Áskrifendur geta hins vegar nálgast vefútgáfuna hér.
Hægt er að gerast áskrifandi að Eyjafréttum hér á vefnum, en blaðið fæst einnig í lausasölu í Tvistinum og á Kletti. Ef þú vilt gerast áskrifandi þá er þetta síðan sem þú getur með auðveldum hætti náð þér í blaðið.