Nýtt blað Eyjafrétta komið út
Þar sem það er frídagur í dag, næst ekki að bera blaðið út til áskrifenda fyrr en á morgun, föstudag - Áskrifendur geta hins vegar nálgast vefútgáfu blaðsins hér á síðunni

Nýtt tölublað Eyjafrétta er komið út. Blaðið er með fjölbreyttu efni úr samfélaginu, bæjarmálum, íþróttum og atvinnulífi í Vestmannaeyjum. Á forsíðunni eru stelpurnar í ÍBV sem hafa farið fljúgandi af stað í Bestu deildinni.

Sveitarstjórnarkosningarnar eru fyrirferðarmiklar í blaðinu þar sem farið er yfir stöðuna fyrir kosningar, framboðin þrjú og helstu áherslur frambjóðenda. Viðtöl eru meðal annars við Eyþór Harðarson oddvita Sjálfstæðisflokksins, Hildi Rún Róbertsdóttur á lista Eyjalistans og Jóhann Inga Óskarsson á lista Miðflokksins.

Í blaðinu er einnig ítarleg umfjöllun um samgöngumál og Landeyjahöfn þar sem Sigurður Áss Grétarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri siglingasviðs Vegagerðarinnar, fer yfir stöðuna og gagnrýnir að lítið hafi verið gert til úrbóta síðustu ár.

Þekkingarsetur Vestmannaeyja er einnig til umfjöllunar þar sem Hörður Baldvinsson segir verkefnastöðu setursins aldrei hafa verið betri og horfir björtum augum til frekari vaxtar í rannsóknum og nýsköpun.

Sjávarútvegur og humarveiðar fá sitt pláss í blaðinu þar sem fjallað er um góðar kolmunnaveiðar hjá útgerðarfyrirtækjunum í Eyjum og jákvæðar niðurstöður úr könnunarveiðum á humri.

Þá má einnig finna mannlífsviðtal við Láru Skæringsdóttur um ferðalög, jóga og lífsstíl, auk fjölmargra annarra frétta, mynda og viðtala úr Eyjum.

Þar sem það er frídagur í dag, næst því miður ekki að bera blaðið út til áskrifenda fyrr en á morgun, föstudag. Áskrifendur geta hins vegar nálgast vefútgáfuna hér.

Hægt er að gerast áskrifandi að Eyjafréttum hér á vefnum, en blaðið fæst einnig í lausasölu í Tvistinum og á Kletti.  Ef þú vilt gerast áskrifandi þá er þetta síðan sem þú getur með auðveldum hætti náð þér í blaðið.

Nýjustu fréttir

Nýtt blað Eyjafrétta komið út
Framboðin mætast í Eldheimum í dag
Fjölskylduafþreying í íþróttahúsinu
Sex ferðir í Landeyjahöfn á morgun
Ríkisstyrkt áætlunarflug til Eyja framlengt út mánuðinn
ÍBV á þrjá fulltrúa sem fara á Evrópumótið með u-18
Ísak Rafnsson leggur skóna á hilluna
Útsýnisskálinn opnaður – myndband
viðburðir
Oddvitar 2026 Samsett
14. maí 2026
17:00
Opinn framboðsfundur Eyjafrétta í Eldheimum
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.