Þrjú framboð takast á um níu sæti í bæjarstjórn
Oddvitar framboðslistanna þriggja, Eyþór Harðardóttir D-lista, Arndís Kjartansdóttir E-lista og Jón Þór Guðjónsson M-lista.

Kosið verður til bæjarstjórnar í Vestmannaeyjum, á morgun laugardaginn 16. maí. Þrjú framboð bjóða fram lista í kosningunum; D-listi Sjálfstæðisflokksins, E-listi Eyjalistans og M-listi Miðflokksins. Í síðustu sveitarstjórnarkosningum árið 2022 hlaut Sjálfstæðisflokkurinn fjóra bæjarfulltrúa, bæjarmálafélagið Fyrir Heimaey þrjá og Eyjalistinn tvo. Fyrir Heimaey býður ekki fram að þessu sinni en Miðflokkurinn kemur nýr inn í baráttuna. Kosningabaráttan hefur verið lífleg síðustu vikur og hafa meðal annars málefni framkvæmda, rekstur bæjarins, hafnamál, skipulagsmál og framtíð uppbyggingar í Eyjum verið áberandi í umræðunni. Þá hefur einnig verið tekist á um stjórnsýslu og forgangsröðun verkefna á komandi kjörtímabili.

Kosið í Barnaskólanum

Kjörstaður í Vestmannaeyjum verður í Barnaskólanum og verða inngangar um norður- og suðurdyr. Aðgengi fyrir fatlaða verður um norðurdyr. Kjörfundur hefst klukkan 9:00 á laugardagsmorgni og stendur til klukkan 22:00 um kvöldið. Að honum loknum hefst talning atkvæða í sal Barnaskólans. Bænum verður skipt í tvær kjördeildir. Í 1. kjördeild kjósa þeir sem voru með lögheimili við Ásaveg til og með Hásteinsvegi þann 8. apríl síðastliðinn, auk óstaðsettra í hús og þeirra sem búa erlendis en njóta kosningaréttar á Íslandi. Í 2. kjördeild kjósa þeir sem voru með lögheimili við Hátún til og með Ægisgötu, auk þeirra sem búa í húsum sem bera bæjarnöfn. Kjósendum er bent á að hafa persónuskilríki meðferðis á kjörstað.

Nýjustu fréttir

Kona fer í framboð
Kjósum með hjartanu!
Þrjú framboð takast á um níu sæti í bæjarstjórn
Saman gerum við góðan bæ enn betri
Hundruð hafa þegar kosið utan kjörfundar í Eyjum
Líflegur lokasprettur í baráttunni – myndir
Þungavigtarfólk byggði upp Vestmannaeyjar
Áttatíu eldri borgarar í sælunni á Tenerife
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.