Kona fer í framboð

Frambjóðandinn Þegar kona ákveður að taka áskorun um að fara í framboð, blaut á bakvið eyrun og þó varla, verandi miðaldra, menntuð manneskja, eigandi þriggja barna og gift besta manni í heimi, ásamt því að vera með eina hraðasekt á bakinu síðan 1999, en ég keyrði Dalveginn á 52 km/klst. og var sektuð um 10 […]

Kjósum með hjartanu!

Kæru Vestmannaeyingar!  Á morgun fáum við tækifæri til að hafa áhrif. Við fáum tækifæri til að taka þátt í mótun samfélagsins okkar með því að nýta kosningaréttinn og kjósa þau sem við viljum sjá leiða samfélagið okkar til næstu fjögurra ára.  Ég er ótrúlega meyr eftir þessa kosningabaráttu með Eyjalistanum og hafa fengið tækifæri til […]

Þrjú framboð takast á um níu sæti í bæjarstjórn

Kosið verður til bæjarstjórnar í Vestmannaeyjum, á morgun laugardaginn 16. maí. Þrjú framboð bjóða fram lista í kosningunum; D-listi Sjálfstæðisflokksins, E-listi Eyjalistans og M-listi Miðflokksins. Í síðustu sveitarstjórnarkosningum árið 2022 hlaut Sjálfstæðisflokkurinn fjóra bæjarfulltrúa, bæjarmálafélagið Fyrir Heimaey þrjá og Eyjalistinn tvo. Fyrir Heimaey býður ekki fram að þessu sinni en Miðflokkurinn kemur nýr inn í […]

Saman gerum við góðan bæ enn betri

Við í Eyjalistanum trúum því að sterkar Vestmannaeyjar byggist á öflugri þjónustu, ábyrgum rekstri og skýrri framtíðarsýn. Við viljum byggja upp samfélag þar sem fjölskyldur, börn og eldri borgarar njóta góðs stuðnings og þar sem tækifæri eru fyrir alla. Menntun og uppeldi Við viljum tryggja að aðstaða og þjónusta við börn og fjölskyldur sé til […]

Hundruð hafa þegar kosið utan kjörfundar í Eyjum

Alls eru nú 3.540 kjósendur á kjörskrá í Vestmannaeyjum fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem fram fara á morgun, laugardaginn 16. maí. Kjósendum hefur fjölgað talsvert frá síðustu sveitarstjórnarkosningum en árið 2022 voru 3.284 á kjörskrá og 3.162 árið 2018. Samkvæmt upplýsingum frá Sýslumannsembættinu í Vestmannaeyjum höfðu 591 einstaklingar greitt atkvæði utan kjörfundar síðdegis í dag. Kjörsókn í […]

Líflegur lokasprettur í baráttunni – myndir

Segja má að hápunktur kosningabaráttunnar í Vestmannaeyjum hafi verið opinn kosningafundur Eyjafrétta í Eldheimum í gær, sem Tryggvi Már Sæmundsson ritstjóri stýrði af öryggi með góðri aðstoð Anniku Vignisdóttur, aðstoðarritstjóra. Á annað hundrað manns mætti á fundinn þar sem fulltrúar framboðanna þriggja sátu í pallborði. Frá D-lista Sjálfstæðisflokksins mættu Eyþór Harðarson og Íris Róbertsdóttir, frá […]

Þungavigtarfólk byggði upp Vestmannaeyjar

Við fjölskyldan fluttum til Vestmannaeyja árið 2021 af ástæðu. Hér var betra að búa, betra að ala upp börn og hér var samfélag sem byggir á dugnaði, nánd og því að hlutirnir eru látnir gerast. Eitt er ljóst að þetta samfélag varð ekki til af sjálfu sér. Fólkið sem ryður brautina Vestmannaeyjar eru einstakur staður […]

Áttatíu eldri borgarar í sælunni á Tenerife

Þessa dagana eru 80 eldri borgarar frá Vestmannaeyjum í Puerto de la Cruz á norðurhluta Tenerife undir tryggri leiðsögn Aldísar Atladóttur og Friðfinns Finnbogasonar. Allt skipulag er til fyrirmyndar og alltaf eitthvað um að vera á hverjum degi. Ekki sól alla daga en frábært veður og passlegur hiti. Hópurinn dvelur á H10-hótelinu sem stendur rétt […]

Eyþór Harðarson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum

Eyþór Harðarson, útgerðarstjóri Ísfélagsins, er oddviti framboðs Sjálfstæðisflokksins. Eyþór, sem er 62 ára, er giftur Laufeyju Grétarsdóttur og eiga þau tvö uppkomin börn og níu barnabörn. Hann er menntaður rafmagnstæknifræðingur frá Þýskaland og hefur áratuga reynslu úr atvinnulífi en einnig talsverða reynslu úr bæjarmálum, þar sem hann hefur verið viðloðandi þau síðastliðin átta ár. Eyþór […]

Teistan siglir til Landeyjahafnar

Bilun í rafmótor Herjólfs heldur áfram að hafa áhrif á siglingar skipsins og var ákveðið að fella niður ferðir dagsins til Landeyjahafnar vegna aðstæðna. Herjólfur siglir þess í stað eina ferð til Þorlákshafnar klukkan 16 í dag. Í tilkynningu frá Herjólfi ohf. kemur fram að skipið sigli nú aðeins á annarri skrúfunni sem hafi í […]

Fyrsta framhaldsprófið í trommuleik við Tónlistarskóla Vestmannaeyja

Nú líður að lokum vorannar Tónlistarskólans og þar með skólaárinu 2025-2026. Árið hefur verið að mestu með hefðbundnum hætti hvað kennslu varðar, en framkvæmdir á húsnæðinu hafa sett svip sinn á skólastarfið. Tökum við slíku fagnandi, enda löngu kominn tími á lagfæringar á húsnæðinu. Má meðal annars nefna að nú er komið aðgengi fyrir fatlaða […]

Hvað gerist næst

Gudni Hjoll Ads C

Maður heyrir af því að bókunarkerfið er komið í lag sem er mjög gott og það hefur verið erfitt fyrir starfsfólk Herjólfs að vinna við þessar aðstæður. En þá skaut upp þeirri hugsun. Hvað bilar næst, kannski mótorinn á hinni skrúfunni eða ?????. Á  meðan er Herjólfur 3 ekki með haffærnisskírteini enda úr sér genginn […]

Jóhann Ingi skipar þriðja sætið á lista Miðflokksins

Jóhann Ingi Óskarsson skipar þriðja sæti á lista Miðflokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í Vestmannaeyjum. Hann segir atvinnulíf, húsnæðismál og samgöngur meðal mikilvægustu verkefna næstu ára og telur að styrkja þurfi grunnstoðir samfélagsins til að bæta lífsgæði íbúa. Jóhann Ingi er 29 ára fjölskyldumaður, giftur Þóreyju Helgu Hallgrímsdóttur og eiga þau tvær dætur, Ísold og Bríet. […]

Líflegur framboðsfundur Eyjafrétta – upptaka

Á annað hundrað manns mætti á opinn framboðsfund Eyjafrétta í Eldheimum í gær þar sem fulltrúar framboðanna þriggja í Vestmannaeyjum tókust á um málefni bæjarins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Frá D-lista Sjálfstæðisflokksins mættu Eyþór Harðarson og Íris Róbertsdóttir, frá E-lista Eyjalistans þau Arndís María Kjartansdóttir og Anton Björnsson og frá M-lista Miðflokksins Jón Þór Guðjónsson og […]

Herjólfur fer næstu ferðir til Þorlákshafnar

Herjólfur ohf. hefur birt nýja tilkynningu um breytta siglingaáætlun vegna siglinga seinnipart föstudags og á laugardag. Herjólfur siglir til Þorlákshafnar seinnipartinn í dag, föstudaginn 15. maí. Brottför frá Vestmannaeyjum verður klukkan 16:00 í stað 17:00 og frá Þorlákshöfn klukkan 20:00 í stað 20:45. Aðrar ferðir falla niður. Á morgun, laugardaginn 16. maí, verður siglt tvær […]

Sterk hagsmunagæsla

Sterk hagsmunagæsla er ekki aukaatriði. Hún er forsenda þess að Vestmannaeyjar haldi áfram að vera öflugt og eftirsótt samfélag til framtíðar. Margt má bæta og gera betur í þeim málum sem eru á forræði ríkisins og snúa að hagsmunum okkar hér í Eyjum. Það er verkefni bæjarstjórnar að þrýsta á ríkisvaldið um úrbætur og ná […]

Hildur Rún skipar fjórða sæti á lista Eyjalistans 

Hildur Rún Róbertsdóttir skipar fjórða sæti á lista Eyjalistans fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Hún hefur verið virk í starfi listans undanfarin ár og segir áhuga sinn á stjórnmálum hafa kviknað snemma. Hildur er varabæjarfulltrúi og leikskólakennari. Í viðtali við Eyjafréttir ræðir hún meðal annars um leikskólamál, uppbyggingu í Löngulág, samgöngur og framtíðarsýn sína fyrir Vestmannaeyjar. Áhuginn […]

Gústav Axel með kraftmikinn sjávarréttaseðil á Einsa Kalda á MATEY

Gústav Axel Gunnlaugsson verður gestakokkur á Einsa Kalda á MATEY sjávarréttahátíðinni og kynnir þar spennandi og nútímalegan matseðil þar sem íslenskt sjávarfang er túlkað með ferskum og skapandi hætti. Seðillinn endurspeglar sterka sýn Gústavs á jafnvægi bragða og áferðar. Hann hefst á skarkola og leturhumri, borinn fram með jarðskokkum, kryddjurta-majónesi, sýrðum lauk og hollandaise-sósu. Þá […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.