Gústav Axel með kraftmikinn sjávarréttaseðil á Einsa Kalda á MATEY
Gústav Axel Gunnlaugsson

Gústav Axel Gunnlaugsson verður gestakokkur á Einsa Kalda á MATEY sjávarréttahátíðinni og kynnir þar spennandi og nútímalegan matseðil þar sem íslenskt sjávarfang er túlkað með ferskum og skapandi hætti.

Seðillinn endurspeglar sterka sýn Gústavs á jafnvægi bragða og áferðar. Hann hefst á skarkola og leturhumri, borinn fram með jarðskokkum, kryddjurta-majónesi, sýrðum lauk og hollandaise-sósu. Þá tekur við skötuselur í kræklingasoði með piparrót, epli og seljurót sem gefur réttinum bæði dýpt og ferskleika.

Í milliréttum má finna laxa tataki með soja, agúrku, súrmjólk og sólselju rétt þar sem léttleiki og hreinleiki hráefnisins njóta sín til fulls. Aðalrétturinn er léttsaltaður þorskhnakki með bankabyggi, tómötum, chorizo og basiliku, þar sem hefðbundið hráefni fær nýtt líf með djörfum bragðsamsetningum.

Í eftirrétt býður Gústav Axel upp á hvítsúkkulaðimús með kakóbaun, bláberjum og blóðbergi. Lokarétt sem sameinar sætleika, sýru og ilm íslenskrar náttúru.

Matseðillinn ber með sér einkennisstíl Gústavs Axel: kraft, sköpunargleði og skýra tengingu við íslenskt hráefni, þar sem hefð og nýsköpun mætast í hverjum rétti.

Haldin dagana 22.-23.maí

Hátíðin sem er samstarfsverkefni Ferðamálasamtaka Vestmannaeyja, Visit Vestmannaeyjar, Ísfélags., Vinnslustöðvarinnar hf, Laxey og Fab Lab Vestmannaeyjar verður haldin dagana 22.-23.maí næstkomandi.

Í ár verður í fyrsta sinn boðið upp á lax frá landeldinu Laxey. Tanginn og Kráin bjóða upp á sérrétti í tilefni hátíðarinnar og Brothers Brewery kynnir sérlagaðan MATEY-bjór.

MATEY er meira en matur. Þetta er helgi þar sem stórbrotin náttúra, lifandi samfélag og sjávarréttir í heimsklassa skapa ógleymanlega upplifun. Tryggðu þér borð í tæka tíð.

Nýjustu fréttir

Sjómannskonur: Guðbjörg Erla
Vel heppnuð fimleikasýning
Brot af því besta úr viðtölum Stjána á Emmunni
Dagur hlaut háttvísisverðlaun HDSÍ
Krakkarnir á Víkinni fögnuðu útskrift
Sjómennska, Surtsey og sveitarstjórn í nýjum Eyjafréttum
Vorsýning fimleikafélagsins í dag
Sandra besti sóknarmaður Olís deildar kvenna
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.