Líflegur framboðsfundur Eyjafrétta - upptaka
Salurinn í Eldheimum var þétt setinn líkt og sjá má. Ljósmyndir/Halldór B. Halldórsson

Á annað hundrað manns mætti á opinn framboðsfund Eyjafrétta í Eldheimum í gær þar sem fulltrúar framboðanna þriggja í Vestmannaeyjum tókust á um málefni bæjarins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.

Frá D-lista Sjálfstæðisflokksins mættu Eyþór Harðarson og Íris Róbertsdóttir, frá E-lista Eyjalistans þau Arndís María Kjartansdóttir og Anton Björnsson og frá M-lista Miðflokksins Jón Þór Guðjónsson og Sæunn Magnúsdóttir.

Stemningin var góð á fundinum og ekki skorti á þátttöku úr sal. Fundargestir lögðu fram fjölmargar spurningar til frambjóðenda auk þess sem fulltrúar listanna beindu spurningum hver að öðrum í líflegum umræðum.

Framboðin fengu einnig tækifæri til að kynna sín helstu áherslumál áður en opnað var fyrir umræður og fyrirspurnir. Fundurinn stóð yfir í um eina og hálfa klukkustund og þótti takast afar vel í alla staði. Hér að neðan má sjá bæði upptöku og myndir frá fundinum.

Play Video

Nýjustu fréttir

Sjómannskonur: Guðbjörg Erla
Vel heppnuð fimleikasýning
Brot af því besta úr viðtölum Stjána á Emmunni
Dagur hlaut háttvísisverðlaun HDSÍ
Krakkarnir á Víkinni fögnuðu útskrift
Sjómennska, Surtsey og sveitarstjórn í nýjum Eyjafréttum
Vorsýning fimleikafélagsins í dag
Sandra besti sóknarmaður Olís deildar kvenna
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.