Þessa dagana eru 80 eldri borgarar frá Vestmannaeyjum í Puerto de la Cruz á norðurhluta Tenerife undir tryggri leiðsögn Aldísar Atladóttur og Friðfinns Finnbogasonar. Allt skipulag er til fyrirmyndar og alltaf eitthvað um að vera á hverjum degi. Ekki sól alla daga en frábært veður og passlegur hiti.
Hópurinn dvelur á H10-hótelinu sem stendur rétt við ströndina í dásamlegu umhverfi þar sem samfelld göngugata liggur meðfram ströndinni. Þar er magnað mannlíf, ótal viðburðir á hverju götuhorni og nóg af verslunum og glæsilegum veitingastöðum. Þetta er því sannkallaður draumastaður.
Boðið er upp á gönguferðir á hverjum morgni og á miðvikudaginn var farið í glæsilega skoðunarferð sem margir nýttu sér. Morgun- og kvöldverður eru innifaldir í pakkanum og fer afar vel um gesti. Sundlaugarbarinn er vinsæll og þar skapast oft mikið fjör.
Á kvöldin safnast hópurinn saman við laugina og í skemmtisal hótelsins þar sem boðið er upp á ný skemmtiatriði á hverju kvöldi.
„Við Friðfinnur erum mjög þakklát fyrir hvað allt hefur gengið vel og fólkið er ánægt. Við getum verið stolt af félaginu okkar. Allir leggjast á eitt til að gera ferðina sem ánægjulegasta og allt hefur gengið upp. Markmiðið er einfalt – engin vandamál, bara verkefni og lausnir,“ segir Aldís fararstjóri ánægð með sitt fólk.

Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.