Líflegur lokasprettur í baráttunni - myndir
Samsett mynd. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson

Segja má að hápunktur kosningabaráttunnar í Vestmannaeyjum hafi verið opinn kosningafundur Eyjafrétta í Eldheimum í gær, sem Tryggvi Már Sæmundsson ritstjóri stýrði af öryggi með góðri aðstoð Anniku Vignisdóttur, aðstoðarritstjóra.

Á annað hundrað manns mætti á fundinn þar sem fulltrúar framboðanna þriggja sátu í pallborði. Frá D-lista Sjálfstæðisflokksins mættu Eyþór Harðarson og Íris Róbertsdóttir, frá E-lista Eyjalistans Arndís María Kjartansdóttir og Anton Björnsson og frá M-lista Miðflokksins Jón Þór Guðjónsson og Sæunn Magnúsdóttir. Hér má sjá upptöku frá fundinum.

Framboðin hafa sjálf verið dugleg að kynna sig og þau málefni sem þau standa fyrir. Óskar Pétur Friðriksson hefur fylgst með því helsta og birtum við nokkrar myndir frá þeim viðburðum sem boðið hefur verið upp á alla vikuna. Ekki er seinna vænna því kosið verður á morgun.

Nýjustu fréttir

Eyþór treystir verklagi bæjarins – aðrir oddvitar vísa til trúnaðar
Vísindin að baki Kveikjum neistann 
Grettir tekur við af Herði hjá Þekkingarsetrinu
Guðný Geirsdóttir leggur hanskana á hilluna
Heimaeyjargosið í nýrri glæpasögu Margrétar S. Höskuldsdóttur
Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 
99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.