Herjólfur fer næstu ferðir til Þorlákshafnar
Herjólfur á siglingu frá Eyjum. Eyjafréttir/Eyjar.net: Tryggvi Már

Herjólfur ohf. hefur birt nýja tilkynningu um breytta siglingaáætlun vegna siglinga seinnipart föstudags og á laugardag.

Herjólfur siglir til Þorlákshafnar seinnipartinn í dag, föstudaginn 15. maí. Brottför frá Vestmannaeyjum verður klukkan 16:00 í stað 17:00 og frá Þorlákshöfn klukkan 20:00 í stað 20:45. Aðrar ferðir falla niður.

Á morgun, laugardaginn 16. maí, verður siglt tvær ferðir til og frá Þorlákshöfn. Brottför frá Vestmannaeyjum verður klukkan 07:00 og 16:00, en frá Þorlákshöfn klukkan 11:00 og 20:00.

Samkvæmt tilkynningunni falla aðrar ferðir dagsins niður. Þá kemur fram að tilkynning um siglingar á sunnudag verði gefin út í síðasta lagi klukkan 06:00 á sunnudagsmorgun.

Nýjustu fréttir

Sjómannskonur: Guðbjörg Erla
Vel heppnuð fimleikasýning
Brot af því besta úr viðtölum Stjána á Emmunni
Dagur hlaut háttvísisverðlaun HDSÍ
Krakkarnir á Víkinni fögnuðu útskrift
Sjómennska, Surtsey og sveitarstjórn í nýjum Eyjafréttum
Vorsýning fimleikafélagsins í dag
Sandra besti sóknarmaður Olís deildar kvenna
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.