Sterk hagsmunagæsla er ekki aukaatriði. Hún er forsenda þess að Vestmannaeyjar haldi áfram að vera öflugt og eftirsótt samfélag til framtíðar. Margt má bæta og gera betur í þeim málum sem eru á forræði ríkisins og snúa að hagsmunum okkar hér í Eyjum. Það er verkefni bæjarstjórnar að þrýsta á ríkisvaldið um úrbætur og ná fram ásættanlegum lausnum. Í því felst hagsmunagæslan og ljóst er að hún skiptir okkur miklu máli.
Áreiðanlegar ferjusiglingar, stórskipahöfn og tryggar flugsamgöngur eru ekki lúxus heldur grunnforsenda þess að hér sé hægt að búa, starfa og reka fyrirtæki. Sama gildir um orkuinnviði, fjarskipti og aðra mikilvæga innviði sem ríkið ber ábyrgð á. Við þurfum góðar tengingar við ráðamenn og embættismannakerfið. Við þurfum sterka rödd sem skilur hvernig stjórnsýslan virkar og veit hvernig á að fylgja málum eftir gagnvart ráðuneytum og stofnunum ríkisins.
Það sama á við um lögregluna, embætti sýslumanns, heilsugæsluna, hjúkrunar- og dvalarheimilið og framhaldsskólann okkar. Þetta eru hornsteinar samfélagsins og þjónusta sem skiptir alla bæjarbúa máli. Við eigum og þurfum að beita okkur í að verja öll opinber störf sem hér eru og við eigum að fylgja því fast eftir að opinberum störfum fjölgi hér í Eyjum.
Þess vegna skiptir máli að í bæjarstjórn sitji fólk sem hefur reynslu, tengsl og skilning á því hvernig hagsmunagæsla gagnvart ríkisvaldinu fer fram. Bæjarfulltrúar þurfa að getað talað máli Eyjanna af festu, byggt upp traust sambönd og knúið fram ásættanlega niðurstöður fyrir samfélagið okkar.
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins er skipaður reynslumiklu fólki sem er tilbúið í þá öflugu hagsmunagæslu sem þarf fyrir Vestmannaeyinga.
Setjum X við D, fyrir öfluga hagsmunabaráttu fyrir Eyjar.
Trausti Hjaltason
Höfundur skipar 2. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins