Teistan siglir til Landeyjahafnar
Teista siglir frá Eyjum. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Bilun í rafmótor Herjólfs heldur áfram að hafa áhrif á siglingar skipsins og var ákveðið að fella niður ferðir dagsins til Landeyjahafnar vegna aðstæðna. Herjólfur siglir þess í stað eina ferð til Þorlákshafnar klukkan 16 í dag.

Í tilkynningu frá Herjólfi ohf. kemur fram að skipið sigli nú aðeins á annarri skrúfunni sem hafi í för með sér að það sigli hægar en venjulega auk þess sem vindur hafi meiri áhrif á skipið en ella. Vindstyrkur í Landeyjahöfn í dag hafi því gert það að verkum að ekki þótti öruggt að sigla þangað.

Fram kemur að ákvarðanir sem þessar séu ávallt teknar með öryggi skips, farþega og áhafnar að leiðarljósi.

Til að bregðast við stöðunni mun Teistan sigla eina ferð til Landeyjahafnar í dag, föstudaginn 15. maí. Brottför frá Vestmannaeyjum verður klukkan 17 og frá Landeyjahöfn klukkan 18:15.

Miðar eru seldir í gegnum vef Rib Safari og segir jafnframt í tilkynningu að þeir farþegar sem eigi nú þegar miða með Herjólfi en kjósi að fara með Teistunni fái farmiða sína endurgreidda hjá Herjólfi.

Nýjustu fréttir

Sjómannskonur: Guðbjörg Erla
Vel heppnuð fimleikasýning
Brot af því besta úr viðtölum Stjána á Emmunni
Dagur hlaut háttvísisverðlaun HDSÍ
Krakkarnir á Víkinni fögnuðu útskrift
Sjómennska, Surtsey og sveitarstjórn í nýjum Eyjafréttum
Vorsýning fimleikafélagsins í dag
Sandra besti sóknarmaður Olís deildar kvenna
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.