
Á morgun fáum við tækifæri til að hafa áhrif. Við fáum tækifæri til að taka þátt í mótun samfélagsins okkar með því að nýta kosningaréttinn og kjósa þau sem við viljum sjá leiða samfélagið okkar til næstu fjögurra ára.
Ég er ótrúlega meyr eftir þessa kosningabaráttu með Eyjalistanum og hafa fengið tækifæri til að kynnast svona ótrúlega mörgu nýju fólki, heimsækja stofnanir bæjarins og félagasamtök, eiga ótal mörg samtöl við íbúa á kosningaskrifstofunni og símleiðis.
Ég er þakklát fyrir traustið sem mér hefur verið sýnt til þessa og full tilhlökkunar að halda áfram þeirri góðu vegferð sem Eyjalistinn er í um þessar mundir.
Eyjalistinn hefur sýnt sig vera leiðandi fjölskylduafl sem leggur áherslu á uppbyggingu innviða, öfluga þjónustu við íbúa á öllum aldri og traustar og skynsamar ákvarðanir, ávallt með hag bæjarbúa í huga.
Rekstur Vestmannaeyjabæjar hefur verið jákvæður sl. átta ár með Eyjalistann í meirihluta en á sama tíma hefur þjónusta við íbúa ekki dalað. Þessir tveir þættir verða að haldast í hendur og þeir hafa svo sannarlega gert það á sl. tveimur kjörtímabilum með Eyjalistann í forystu. Nú þurfum við að halda áfram með þau verkefni sem eru í vinnslu og til þess þurfum við áframhaldandi stuðning! Reynsla okkar í meirihluta skiptir máli og höfum við sýnt að okkur er treyst fyrir rekstri og uppbyggingu samfélagsins.
Á kjörtímabilinu sem er að líða hefur verið bætt við rúmum 60 leikskólaplássum á leikskólunum okkar, nýtt leiksvæði við Vigtartorg reis, þróunarverkefnið Kveikjum neistann komst á laggirnar, nýtt leikskólakerfi var tekið í notkun eftir markvissa vinnu starfshóps um málið en núna eiga fjölskyldur rétt á 30 gjaldfrjálsum klukkustundum á viku. Öll þessi atriði komu til með vilja Eyjalistans til þess að gera samfélagið okkar enn betra fyrir börnin okkar.
Á morgun er kjördagur og þið, kæru kjósendur stýrið ferðinni. Verum þakklát fyrir kosningaréttinn, mætum á kjörstað og höfum áhrif á hvernig næstu fjögur ár líta út í Vestmannaeyjum! Ég vil biðja ykkur um að kynna ykkur stefnumál þeirra framboða sem bjóða fram í Eyjum, það er gott fólk á öllum listum en hvar liggja þín gildi? Ég býð fram krafta mína í fjórða sæti á framboðslista Eyjalistans og vonast eftir þínu atkvæði á morgun! Setjum X við E fyrir fjölskyldurnar, framtíðina og til þess að gera góðan bæ enn betri!
Hildur Rún Róbertsdóttir
Höfundur skipar 4. sæti á lista Eyjalistans.