Þegar kona ákveður að taka áskorun um að fara í framboð, blaut á bakvið eyrun og þó varla, verandi miðaldra, menntuð manneskja, eigandi þriggja barna og gift besta manni í heimi, ásamt því að vera með eina hraðasekt á bakinu síðan 1999, en ég keyrði Dalveginn á 52 km/klst. og var sektuð um 10 þús. krónur, sem ég er enn að jafna mig á! En með því að prófa nýja hluti, hrista upp í lífinu og fá tækifæri sem ekki var hægt að sleppa, stökk ég í djúpu laugina. Þrátt fyrir að gera mér grein fyrir að álag og streita gætu fylgt í kjölfarið. Nú sem aldrei fyrr er gríðarlega mikilvægt að halda í gleðina og sjá það jákvæða í sem flestum aðstæðum.
Það sem ég tek út úr þessum vikum er ekki keppnin milli flokkanna, allar vinnustundirnar eða hvað ég muni uppskera. Það sem mestu máli skiptir er allt frábæra fólkið sem ég hef kynnst, allir vinnustaðirnir sem við heimsóttum, öll sú nýja sýn sem ég fékk á bæjarfélagið mitt og vissan um að ég hafi valið rétt. Það er morgunljóst að alltaf er þörf fyrir gott fólk sem vill gera bæinn sinn enn betri. Fyrir konu í framboði hefur mér fundist mikilvægast að gefa af mér, eiga gæðastundir með góðu fólki og finna fyrir þakklæti. Allt hefur þetta verið ótrúlega dýrmæt reynsla og ég er ríkari fyrir vikið.
Það er svo auðvelt að gleyma að sinna því sem veitir okkur mesta hamingju og vellíðan þegar mikið er að gera. Flestir munu því fara að sinna börnum og mökum, aðrir flýja erlendis ef úrslit reynast óhagstæð, enn aðrir fara ekki út úr húsi, og aðrir hafa himinn höndum tekið. Ég ætla ekki að gera neitt af þessu. Ég ætla að fara á bókasafnið og taka mér bók, ég ætla að spjalla við Drífu og hennar fólk. Jafnvel að fá mér ís, en bara lítinn, þar sem ég þarf mögulega að mæta í nýja vinnu á mánudaginn. Aðallega ætla ég að vera hreykin af því að hafa tekið þátt, ég ætla að gleðjast yfir mínum frábæra Eyjalista, ég ætla að minnast allra þeirra sem ég hef kynnst með hlýhug og hrópa húrra yfir að hafa boðið mig fram. Því ég hef mikið og margt fram að færa eins og minn frábæri listi allur í heild sinni. Lokatakmark okkar allra er að blómstra í lífi og starfi. Fyrir konu í framboði mun lífið halda áfram, vonandi með áskorunum um að gera bæinn okkar enn betri. Mín ósk er því sú að geta haft vellíðan og velferð ykkar allra að leiðarljósi á komandi kjörtímabili. Með því að treysta á okkur og kjósa með hjartanu setjið þið X við E.
Lifið heil, lifið sönn og lifið sátt.
Arndís María Kjartansdóttir, oddviti og bæjarstjóraefni E listans.