Maður heyrir af því að bókunarkerfið er komið í lag sem er mjög gott og það hefur verið erfitt fyrir starfsfólk Herjólfs að vinna við þessar aðstæður. En þá skaut upp þeirri hugsun. Hvað bilar næst, kannski mótorinn á hinni skrúfunni eða ?????. Á meðan er Herjólfur 3 ekki með haffærnisskírteini enda úr sér genginn blessaður. Það þarf annað skip sem ristir svipað og núverandi skip en með meiri ganghraða og gæti siglt á móti Herjólfi 4 yfir álagstímann og leyst núverandi skip af hólmi ef bilun kemur uppá. Það þýðir ekki fyrir stjórnvöld að henda litlum plástrum annað kastið í okkur. Þarna þurfum við allar hendur á dekk.
Fráfarandi bæjarstjórn E listans og H listans (D) henda frá sér ýmsum óvönduðum ákvörðunum eins og byggingu við íþróttahúsið sem bæði íþróttahreyfingin og starfsfólk íþróttamiðstöðvarinnar eru ósátt við. Fiskiðjuhúsið selt á undirverði að margra mati og ýmis starfsemi þar er í óvissu.
Einnig hefur Viska selt sitt húsnæði þar sem góð starfsemi listafólks hefur haft aðsetur og veldur því fólki kvíða vegna óvissu.
Nú tala fulltrúar flokka í öllum framboðum fyrir vandaðri vinnubrögðum og viðurkenna þar með að ekki hefur verið vandað nægilega til verka undanfarin ár.
En er þá ekki kominn tími á breytingar hér. M listinn býður fram hér í fyrsta sinn og boðar breytt vinnulag og meiri ábyrgð.
Látum hjartað ráða. SETJUM X VIÐ M.
Guðni Hjörleifsson
Höfundur skipar 5. sæti á lista M.